Erlent | 20.3.2003 | 4:40
New York: hermenn á verði við neðanjaðarlestarstöðvar
 |
 |
AP
Lögreglumaður á vakt við Rockefeller-miðstöðina í New York.
|
 |

|
Senda frétt |

|
Leita í fréttum mbl.is
|

|
Fréttir vikunnar |

|
Prenta frétt |
 |
|
 |
Ólafur Þórðarson, sem er búsettur á
Manhattan í New York, segir að vopnaðir hermenn séu við helstu
neðanjarðarlestarstöðvar borgarinnar vegna hernaðaraðgerða
Bandaríkjamanna gegn Írak. Hann segir ekki loku fyrir það skotið að
hópar fólks muni halda sig heima í stað þess að fara til vinnu í
fyrramálið.
Ólafur sagði að margir Bandaríkjamenn fylgdust grannt með sjónvarpi í
tengslum við stóratburði og svo virðist sem að margir hafi dvalið heima
hjá sér í kvöld. "Ég fór á veitingastað í Kínahverfi og það var áberandi
hve fáir voru á staðnum miðað við venjulega og hve fátt fólk var á ferli
í hverfinu, sem jafnan iðar af mannlífi. Annað hvort er fólk á varðbergi
vegna mögulegra árása eða að fylgjast með sjónvarpi. Þá er líklegt að
margir muni halda sig heima á morgun og fylgjast með sjónvarpinu."
Ólafur sagði ennfremur að hermenn væru á vakt við
neðanjarðarlestarstöðvar í borginni. "Þeir virðast vakta helstu
lestarstöðvarnar af öryggisástæðum, en hermenn hafa ekki sést hér á
götum frá því 11. september.".
Ólafur segir að fjölmargir Bandaríkjamenn séu andvígir hernaði gegn
Írak, einkum menntafólk. "Þá eru margir sem eru andvígir árásum án
samþykkis Sameinuðu þjóðanna og eru ekki sammála forsetanum um að allt
hafi verið gert til þess að afstýra stríði," sagði Ólafur.
Til baka
|