Blogg Ólafs Þórðarsonar í New York  á dingaling.net  Velkomin(n)
Ef þú ert svona aktual vegfarandi/Íslendingur í ferð á Manhattan máttu alveg hringja og fá kaffi hjá mér. Við erum í fjármálahverfinu rétt sunnan við World Trade Center fyrrum, aftan við Trinity kirkju, í húsinu hér til hægri, númer fjörutíuogfjögur Trinity Place annari hæð.  Hvað finnst þér annars um myndina af mér? Er hún ekki fín? Viltu smá meira kaffi? Tíu dropa? Nei í alvöru. Hvað finnst þér um myndina af mér? 

Þú ert hér og nú sem einn af fjölmörgum virtual veffarendum og hefur fullann rétt að
kvarta yfir botnlausu bullinu, á hinu auðnotaða kvörtunar svæði. Sumt hefur verið fyrst birt annars staðar undir dulnöfnum. Annað er ekki við hæfi barna! Aldurstakmark: 15. Ára. Ef þú ert undir þeim aldri birtist dularfullur svartur kassi
[ala american tv] yfir ósæmilegu orðavali og dónaskap og ósýnileg myndavél á vefsíðunni tekur af þér mynd sem send verður til foreldranna! Ef þú ert ekki orðin(n) 16 ára, þá smelltu á þetta spennandi option: close window Annars má ekki kópíera neitt hér nema láta mig vita fyrst og samþykkja. Allt efnið hér eru mín skrif og myndir nema annað sé tekið fram. Njótið meðan ég endist. Þetta blogg var lengi vel prívat, eða þar til Örn frændi minn tölvuexpert sannfærði mig um ágæti þess að setja blaðrið á glámbekk. Sjálf síðan hefur flakkað svolítið í gegnum árin.

stopp!
BANNAÐ INNAN 16. ÁRA


29. Desember, 2003
Afmæli Lilju
Nú á Lilja 2ja mánaða afmæli. Fékk að fara til læknisins og fá 2 sprautur. Það er þá afmælisgjöfin eða hitt þó heldur! Tók þessa mynd af þeim Donnu í gær.

27. Desember, 2003
Einkav
æðing bókasafnanna?
Las vafasama grein einhvers Ragnars Jónassonar í annars góðri Lesbók Mbl. að hann hafi áhuga á að einkavæða bókasöfnin. Hann setur jafnaðarmerki milli bókasafna og myndbandasjoppa. Er þetta ekki bara della? Verða áherslurnar þá ekki aðallega á svona söluhæstu (mest út tékkuðu) bækurnar og fræðiritin líða fyrir vikið? Mér sýnist þetta varla ganga upp. Þar að auki fer ríkið varla á hausinn svona eins og svo margir einstaklingar gera og þá eru ritin betur geymd í öruggri gæslu. Enda er mikill munur á annars vegar sögubókum eða VHS myndbandaspólum með Hollywood afþreygingarmyndum hins vegar, gegnt því sem þessi Ragnar heldur fram.
Eru bókasöfnin heima þá svona léleg að þurfi gagngerra breytinga við? Hvernig græða menn á svona? Rukka 150 kr per bók á viku? 150kr á dag? Hækka sektir?
Hvað myndi batna við einkavæðingu safnanna? Fleiri Harry Potter bækur á lausu, en færri bækur um miðaldarsögu og um arkitektúr? Hvað græðist við að þurfa að greiða einhverjum asna úti í bæ hærri upphæð bara til að fá lánaða bók?

26. Desember, 2003
Bílinn á sínu síðasta
Í næstu viku fer ég með bílinn okkar og hendi honum. Á leiðinni úr fjölskyldumatnum bilaði stefnuljósið og þá fékk ég nóg. Rafkerfið er allt í hassi, það kviknaði í honum fyrir mánuði síðan, nú hef ég eytt of miklu og er mælirinn fullur. Ekki borgar sig að gera við hann þó það sé verið að ræða um sjálfann Lincoln. Bless gamli bíll, það var ágætt meðan það entist.

15. Desember, 2003
Grein í Ítölsku vefriti
Í gær birtist grein um vinnu mína í vefritinu architettura.it , þ.e. á slóðinni http://www.architettura.it/artland/20031214/index.htm , þokkalegt dæmið það, gott úrval af myndum og textinn skemmtilegur, það er enskur button á síðunni ef þú lest ekki Ítölsku.

14. Desember, 2003
Sunnudagsröfl
Þá eru það búnar að vera ca 2 vikur þar sem ég sit með Lilju litlu fram til 3 eða 5 á morgnana og gef henni að borða eða hugga hana við grátinn. Greyið, hún er með magaverki eða einhver ónot. Þetta ruglar aldeilis deginum, maður vaknar einhvern tímann fyrir hádegi, eins og maður gerði sem unglingur. Kannski er þetta bara ágætt mál, setur mann í ákveðið sjónarhorn á tilveruna.

Fór upp í skóla í síðasta skipti sl. Fimmtudag. Náði í lokaverkefni nemenda minna, þau eru 12 og prentuðu út nokkrar litablaðsíður sem ég set svo saman í möppur svo allir hafi eintak af önninni. Þetta lítur vel út og ljómandi að sjá svona áhugasama vinnu. Misjöfn er hún og þau eru mislangt komin í hönnunarþroska, en mér sýnist ég hafa sett rétt mörk og skilyrði.


10. Desember, 2003
Framtíðarsýn.
Eftir 20 ár verðum við öll komin með svona chip í grædda í heilann. Þá verðum við svo gáfuð þangað til inboxið krassar. Þá kemur satan og við drepumst öll í ógurlegu bálhafi helvítis.

6. Desember, 2003
Grein í mbl.
Í síðustu viku, Lau 29. Nóv birtist þessi grein um okkur Donnu í tengslum við eitthvað jólablað. Fengum uppskrift frá Philip, frænda Donnu sem á einhvern veitingastað í Bronx. GREIN

2. Desember, 2003
Svaðilför til Providence
Vaknaði að venju eldsnemma í morgun og keyrði í kennslu til Providence (RISD). Þegar ég var kominn aðeins inn í Connecticut byrjaði að snjóa og innan bráðar var kominn ís á hraðbrautina. Ég hægði á mér úr 110 km hraða niður í ca 50/60 og hélt áfram. Út undan mér hægra megin sé ég stutta röð bíla að fikra sig inn á hraðbrautina. Aftast í röðinni var einhver jeppatöffari á SUV sem virtist missa þolinmæðina á þessum sniglaaumingjum og gaf í framhjá þeim til að spæna inn á hraðbrautina. Hann kom inn á svellið kallinn og svínaði fyrir mig 90 gráður og negldi beint inn í steinsteypubúkkann vinstra megin við mig, klessti bílnum sínum í hann þar sem ég rétt slapp framhjá. Það munaði ekki nema einni sekúndu að maður lenti í slæmu slysi, allt fyrir status symbol rembubjána sem heldur að hann sé eitthvað af því hann er á e-s jeppa. Það er jú víst ekki nóg að eiga stórann bíl, menn verða líka að kunna að keyra þá án þess að stofna öðrum í stórhættu. Prísa mig sælann með daginn, en svellið ágerðist með 2ja tíma hraðbrautarstoppi þar sem ég þurfti að míga í tómann pappabolla, alveg í spreng. Maður getur verið handtekinn fyrir svoleiðis í Ameríku.

28. Nóvember, 2003
Orri frændi hringdi í dag
Skrýtið, ég sem hef ekki notað Celestion hátalarana í 3 ár og tengdi þá í dag. Hef heldur ekki talað í síma við Orra í langann tíma. Hann nefnilega seldi mér þessa þrusu hátalara 1983 og soundið í þeim er GUT. Ja ja. Skemmtileg tilviljun. Ég tengi hátalarana og samstundis hringir Orri kallinn.
 
Mynd eftir Óla frænda
Hér sést svo þessi stórfína mynd sem kom í póstinum áðan, eftir frænda minn Ólaf Þórsson; af hljómsveit sem hann dreymir um. Með þessu áframhaldi verður frændi minn mikill málari.

Lilja í baði
Ó já og ekki má gleyma rúsínunni í pylsuendanum, Lilju í baði í dag. Það var voða gaman, ekki síst hjá Dóru ömmu og öllum viðstöddum.
 

Og svo ákvað mamma að vera áfram hjá okkur fram á 11 desember. Það verður stórfín hjálp fyrst ég kenni í RISD alveg fram á þann dag og Donna byrjar svo aftur í djobbi í lok næstu viku.

18. Nóvember, 2003
Bíllinn bilaði á leiðinni frá Providence í gærkvöldi.
Og ekki nóg með það, heldur á nákvæmlega sama stað og hann hefur bilað áður, á I-95 milli Boston og New York. Í fyrra bilaði hann á sama stað, mikill gufa gaus upp undan húddinu og hann svo dreginn á verkstæði inn af afleggjara 3A í Rhode Island. Dvaldi í það skiptið á illa lyktandi Indverjamóteli og viti menn. Sama uppá teningnum núna. Í þetta skiptið klikkaði Alternatorinn með miklum hvelli og rautt ljós birtist í mælaborðinu. Dreginn inná afleggjara 3A og ég hugsaði með mér "Bermuda Triangle". Ókey, ég lét gera við, dvaldi aftur á Indverjamótelinu og lagði svo af stað til New York í morgun. Ekki batnaði ástandið því ég var rétt kominn af stað þegar
mikill reykur kom út úr hanskahólfinu! Ég gargaði SHIT! Famous last word. Keyrði út af og opnaði hanskahólfið og reif það út með fullann kaffibolla að blautvopni. Mikið af leiðslum voru þarna og engin þeirra með loga svo ég beið og á endanum fór ég aftur á verkstæðið og þeir tékkuð á þessu og kváðu allt vera ókey man en að rafkerfið í bílnum væri að klikka. Eitthvað hefði bráðnað. Bermuda Triangle hugsaði ég aftur, en af þessum 150 afleggjurum á leiðinni hefur bíllinn núna  klikkað 3x á sama stað. Síðan þá virkar klukkan bara, og inniljósin líka, hvort tveggja einnungis ef lykillinn er í svissinum. Hmmm!

Ó já...Tryllitækið mitt, Lincoln Town Car. Hér er mynd af HONUM. Bætti gæjanum á bílinn í vor, brosandi öðrum megin, í fýlu hinum megin. Þetta vekur eftirtekt hjá prúðum könum. Næsti bíll sem við eignumst verður svona Nixon Town Car, svartur með svertu gleri. Þar eftir eignumst við vonandi Clinton Town Car, bleikann bíl með svona einhverri píkumynd aftaná. Allt má jú víst markaðssetja og ekkert í dag er heilagt.

16. Nóvember, 2003
Árni Johnsen listamaður
Ég stalst til að krukka í listaverki Árna sem vígt var í gær. Mér fannst undirstaðan vera eitthvað svo rimlaleg að það lá við að best væri að bæta við nokkrum í viðbót. Bæta vinnu hans. Setti svo inn á Málverjavefsíðurnar undir mínu venjulega dulnefni...
www.malefnin.com

<-- Mynd STAL henni úr mogganum


10. Nóvember, 2003
http://www.scandesign.org
Sl. Fimmtudag opnaði í Berlín stóra samnoræna hönnunarsýningin. Hún kemur á næstu árum til með að ferðast um gervalla Evrópu og enda í usa einhvern tímann 2006. Valdir voru 3 hlutir eftir mig á hana og er það hið besta mál, vínrekki, UL3 ljósið og svo Escargot klukkan mjúka.

5. Nóvember, 2003
Fædd dóttir okkar: Lilja Anna Ólafsdóttir
Fyrir akkúrat viku, 29. Október, fæddist dóttir okkar Lilja. Hún kom í heiminn á St. Vincents spítala neðarlega á Manhattan um kvöldmatarleytið. Við vorum öll á spítalanum fram á Laugardag því Donna tók því rólega eftir keisaraskurðinn. Lilja litla er óskaplega þæg og góð, sefur mikið og dundar sér sjálf vakandi. Ég er kannski svolítið biased en hún er gríðarlega falleg stúlka og má sjá meira um hana hér: www.dingaling.net/lilja.htm

 

27. Október, 2003
Írak.
Þessa helgi var Amerísk herþyrla skotin niður í Írak. Skotið eldflaugum í hótelið þar sem Wolfowitz var, sprengjur á lögreglustöðvum og fyrir utan Rauða Krossinn í Bagdad. Þetta er sorglegt mál. Hrokinn og "ég get alveg" mentalitet fanatískra stjórnmálamanna búið að koma Bandaríkjunum í slæma klemmu sem mun draga dilk á eftir sér í öllum geirum BNA, og hafa slæm áhrif á þjóðfélagið, vonandi ekki eins og Víetnam hafði slæm áhrif á Bandarískt þjóðfélag. Stefnubandalag Bush við Sharon er að draga Bandaríkin inn í vítahring og langvarandi dauðaklemmu.
Sumir eru þegar farnir að impra á herskyldu. Niðurskurðir vegna óraunhæfu og dýru skattalækkananna og svo nú hernaðarvitleysunnar munu lækka lífskjör enn meir meðal þeirra sem minna mega sín í BNA. Ráðamenn skella skuldinni um slæmar fréttir á blaðamennina. Plönin um eftirstríðsmála voru ekki raunhæf, vanhugsuð og hafa leitt af sér dauða hundruð ef ekki þúsund manna. Rumsfeld talaði um fyrir ári síðan að stríð á nokkrum vígstöðvum væri vel framkvæmanlegt og þessi ólöglega innrás gerir BNA á endanum að e-s nýlenduveldi. Hershöfðingjar BNA tala um að þetta sé stríð gegn íslam og satan, Powell talar um hernaðaraðgerðirnar og að við séum öll undir sama guði í sömu setningu. Þetta er allt ljótt og heimskt. Brundbletturinn í kjól Mónikku er orðið enn ómerkilegra mál en það var þegar mál var gert úr slettum Clintons. Nei, þessi Hvítahússstjórn er slæm fyrir Bandaríkin. Þá var hin betri.
Þetta voru orð Bush í dag sem ég tók eftir, smá mismæli, "
These terrorists do not reflect the will of most Iraqi´s. Most Iraqi´s want to live in peace and freedom, we will find these people and bring them to justice."

21. Október, 2003
Íbúðaruppgerð
Strekkti svefnherbergið okkar með þar til gerðum svefnherbergisstrekkjara. Með þessu nýja fyrirkomulagi, kemst hjónarúmið betur fyrir og barnarúm líka. Málaði það svo hvítt, setti nýtt hvítt teppi á það og allt verður hvítt í því. Mjög óvenjulegt hjá okkur. Allt í íbúðinni er mjög litríkt og gott að kontrasta svefnherberginu sem himnaríki í samanburði við sjálft helvítið. Betra fyrir ungbörnin. Hvernig ég strekkti herbergið er hernaðarleyndarmál hönnuðarins, enda væri vinsælt að apa þetta upp eftir manni ef menn fyndu út hvernig farið var að. Allir svo sólgnir í meira rými.

 
Svo setti ég saman IKEA hillur fyrir vinnupláss Donnu. Þær eru/voru ljótar en praktískar. Skellti af bakinu á þeim og steypti resin aftaná, svo nú nýtast þær sem skilrúm og hægt að sjá í gegnum þær. Donna sæta og allt draslið sem hún setur í hillurnar verður í móðu. Þetta er dýrt að gera, glæra efnið á hilluna kostar 5x meira en sjálf hillan, en ágætis test í að lappa upp á svona þegar tilbúnar iðnaðarvörur. Hafa má samband við mig að kaupa the real thing.

Annars á Donna að farða Moniku Lewinsky í byrjun næstu viku. Merkilegt nokk. Allir geta notast við góðann farðara, nefni engin nöfn. Nokkrum dögum síðar á barnið að fæðast... Donna er dugleg.

Þessi bloggari Íslenskur er virkilega óvenjulegur og dónalegur mjög. Ekki við hæfi barna! Gylfi Gröndal


18. Október, 2003
Um hákúltúr og lágkúltúr.
Það er margt til í því hjá sumum sem kvarta yfir fordómum eldra fólks varðandi kynlíf og hegðan unglinga. Ég verð að segja fyrir minn smekk að það hefur lengi vel verið svona froðukúltúr sem fylgir dýpri kúltúr, það er í fínu lagi að gagnrýna þennan froðukúltúr. Film Noir var í hámarki á svipuðum tíma og þegar Elvis var að dilla sér. Froðukúltúrinn var á sjöunda og áttunda áratug t.d. popp tónlist sem náði sögulegu lágmarki í plötuútgáfum eins og Top of The Pops eftirlíkingum af vinsældarlistunum. Mikið af poppinu var innihaldslaust tónablaður sem fjallaði ekki um neitt. Á sama tíma voru ýmsar hljómsveitir sem virkilega fengust á við að reyna að skilgreina tilveruna, eins og sannir listamenn gera, má nefna sem dæmi þekktar hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Yes eða King Crimson (1968-1974) eða staka tónlistarmenn á borð við Bob Dylan og barasta Megas.
Ég held að eldri gagnrýnendur skiptist líka í hópa sem m.a. má skipta þessa 2 flokka. Annar hópurinn alinn upp í poppgargi, og löngu gleymdum reyfurum, hinn alinn upp í alvarlegri tónlist. Beggja lífsstíll hefur mikið mótast af þessum stefnum.
En hvað varðar Madonnu, þá hefur hún lítið til málanna að leggja, ekkert frekar en einhver "ofsalega skemmtileg" bílaauglýsing. Hvað þá Britney Spears, amerískt sölurokk eða mikið af þessu dansikántrý sem er áframhald á síendurteknu nótnagjálfri og samhengislausu bulli. Mikið af kvenfólkinu er þó með ágætis brjóst sem dilla dátt og finnst mörgum karlmönnum  óskaplega gaman og róandi að horfa á. Kannski skiptir það ekki máli, nema að ég vill endilega að dóttir mín taki sér upp betra viðfangsefni en að vera upptekin við að sýna á sér rassinn.

17. Október 2003
Styttist í fæðingu.
styttist í fæðingu dóttur okkar, maginn á Donnu er risastór og stúlkan sparkar heilmikið. Er að breyta svefnherberginu, stækkaði það með því að færa til vegg, málaði og nú er að bíða eftir nýju teppi.
Gjafirnar fylla upp gestaklósettið eins og sést hér til hliðar. Vaskurinn er horfinn í stafla af nýjum gjöfum frá vinum.

 


15. Október 2003
Löggur út um allt og kallar með vélbyssur.
Hef gengið um í hverfinu í dag og tek eftir að óvenju mikið er af köllum með vélbyssur. Greinilega er búist við einhverju. Nema það sé bara að Runni forseti sé lágt í skoðanakönnunum og þetta hluti af því að að styrkja hræðsluáróðurinn. Það gefst vel til kosninga eins og alltaf, Meira að segja hjá XD; "Passiði ykkur á kommunum!" Talandi um svona hægri menn, þá er þessi Adolf nokkuð fyndinn.
Það kom hingað blaðamaður sem er að skrifa einhverja bók. Það var áhugavert að ræða við hann í um 2. tíma.

3. Október, 2003
Tölvur
Setti upp þennan fína litaprentara í dag, laserlitaprentara. Keyptum hann fyrr í vikunni. Hann prentar út fínt og ég er hæstánægður með hann. Eitt er þó víst og breytist seint, er það sem er gott að benda á varðandi tölvur: Mikið af þessu tölvudóti er helvítis drasl. Óunnar, ókláraðar vörur, prógrömm full af göllum, tæki passa ekki saman, maður kaupir sér prentara, skanner eða annað og þetta er ónýtt eftir ár eða tvö, eða maður er alltaf að stappa í að fá það til að virka eða uppgötvar að eitthvað kostar 10000000kr, þá þarf að eyða 100000 í eitthvað aukadrasl sem er selt sér í kassa, svona eins og að kaupa bíl, "fjórða dekkið er auka". Ef maður kaupir sér tölvu þarf maður að gerast (viljugur eða óviljugur) einhvers konar tölvunörd og tölvuexpert og eyða voða tíma í að fá þetta allt til að virka. Helst að skipa sér í pólitískann flokk, annað hvort Windows eða Macintosh. Þeir hinum megin línunnar eru svo óvinir og vitleysingar. Og þeirra drasl miklu meira drasl en draslið sem maður var svo vitlaus til að draslast til að kaupa sjálfur.

2. Október, 2003
Frelsi neytandans
Allt sem maður kaupir er helvítis drasl. Svo hendir maður því.

28. September, 2003
Sunnudagur.
Var að koma inn úr hjólreiðatúr, hjólaði mína 15 km í stífri norðanátt og svölu veðri. Mikið er þetta gott. Hvíli mig svo miðja vegu á bryggjusporði við Hudson ánna, ca. midtown. Þar er smá útivistarsvæði og mætti ætla gott loft, en dallarnir sem leggja að bryggjunni eru ekki lítið mengandi og vibba bensínfýla og reyk sem stundum leggur af þeim. Stundum lendir maður í þessu og dvelur þá ekki í sjónarspili með ánni. Fólk flykkist í þá til að komast í náttúruna, held ég, en svælir í staðinn sóti og brenndri bensíndrullu.
 
Syracuse University.
Í fyrramálið fer ég svo til Syracuse Háskólans Norðar í New York fylki, að vera prófdómari í arkitektúrdeildinni. 5 tíma keyrsla. Svo keyri ég þaðan til Rhode Island um kvöldið, 5 tíma keyrsla. þetta er smá törn, en lítið mál fyrir menn af víkingaættum. Svo aftur 3 tíma keyrsla aftur til New York.
 
Jane Jacobs, Life and Death of Great American Cities.
Já hér er bók sem ég er við að klára, brilliant rithöfundur, hefur ótrúlega innsýn inn í líf stórborga og hvað orðið "borg" raunverulega þýðir. Ef einhver vill skilja hvers vegna maður lítur á Reykjavík sem úthverfi austan Snorrabrautar, þá nægir að lesa þessa 500 bls bók.

26. September, 2003
RISD Opnun
Í gærkvöldi opnaði bi-annual sýning listamanna sem kenna við RISD. Þetta er þokkaleg sýning, þar sem ægir saman mörgum hlutm. Þar eru nokkrir hlutir meira í ætt við föndur, aðrir eru arkitektúr, skúlptúr og svo líka gríðarlega góð málverk í tilraunastílum. Safnið er á 2. hæðum og var Delirium Tremens vínrekkanum mínum stillt upp efst í stiganum, eiginlega utanvið troðna sýninguna, alveg sér og mjög áberandi í fínu dagsljósi. Ánægður með hvernig þetta kom út og gæðin á sýningunni. Opið 26. September-26. Október.

21. September, 2003
Harley Davidson keyra að WTC.
Það er undarlegt hversu mikið af fanatík þrífst um heiminn. Beint hér fyrir utan hjá mér eru nokkur hundruð spikfeitir Harley Davison töffarar á svona lazy-boy mótórhjólum. Aftan á leðurjakka einnar gellunnar
sá ég að stóð stórum stöfum, undir mynd af Amerískum fána: "Try burning this one, ASSHOLE!" Grunnt er á ofbeldið.

10. September, 2003
Baby shower
Þá upplifði maður fyrsta barnapartíið, Kinversk vinkona og samstarfskona Donnu, Yue Sai Kan sem á stórt hús við hliðina á Kofi Annan, var með smá kokteilpartí handa okkur og var mjög gaman. Þar mættu helstu vinir, s.s. Skúli og Tóta, Hjalti frændi ofl. ofl. gott fólk. Hér er nýjasta myndin af Pumpkin Donnudóttur. Pumpkin náttúrulega smá grín þar eð hún á að koma í heiminn á Halloween.
Svo verður önnur sturta hjá fjölskyldu Donnu í byrjun Október.

1. September, 2003
Skattar, lýðræðisfyrirkomulag og peningar
Það er mikið hægt að bæta núverandi lýðræðisfyrirkomulag. Aðhald og varnaglar þurfa að vera úthugsaðir áður en breytingar eru gerðar, breytingar eiga sér oft ekki stað nema eitthvað mikið komi uppá, eins og í 1. hallæri eða 2. hallæri eða 3. hallæri. Það skal viðurkennast að það er einmitt versti tími til breytinga en það eina sem brýtur annars tíðindalausa tilveru almennings sem stundar Kringluna í veruleikanum sem og í dáleiddum draumförum um Kalvin Klein, nýja hárgreiðslu og Boss jakkaföt, inn á milli sem það hneykslast á uppáferðum annara af því það fær ekki nóg sjálft. Nema ég, náttúrulega.

Oft dreymir mig hér í Ameríku að geta strikað út kostnaðarliðinn "Pentagon" þegar ég fylli út skattskrána. Það er öllu flóknara heima á Íslandi þar sem lýðræðið er mun virkara og bruðl hins opinbera ekki alveg eins augljóst nema í vilteysu eins og menntun og hjartaaðgerðum. Svo skiptir náttúrulega miklu að kjósa ekki í háar stöður menn sem vilja koma þessum kostnaðarlið "Íslenskur her" inn á skattpínda þegnana í ringulreiðinni í kringlumýrarbellinum. Þá mun söluskatturinn hækka svo mikið að ungar tískudömur geta einungis keypt sér 3 nýjar flíkur á mánuði í stað fjögurra til að gleðja auga okkar karlmannanna sem yrkjum sorgarvísur og drekkum bjór á einhverri kjaftasíðu seint um nótt...

En hver sagði að peningar væru gjaldmiðill lífsins? Er ekki það sama sagt um good looks? Og ástina? Og traust náungans á manni? Og samfarir? Og matinn? Og súrefni? Og hreint vatn? Heyrðu, hvers vegna hefur hagfræðingum á borð við Hannes Friedmann tekist að einfalda flókna hluti í eitthvað sem meikar ekki sens? Les mest þessar bjánasögur um "þrjá menn á eyðieyju og einn finnur pakka af pulsum" og þar fram eftir götunum. Þvílík endemis þvæla sem lekur af síðunum í þessum hagfræðiskruddum.

27. Ágúst, 2003
RÚV og einkavæðing þess
Einn jeppi sagði þetta: "Undarlegt að Ríkisútvarpið reki þessa vefverslun, en það er svosem eftir öðru með þessa stofnun." Komment:
Af hverju ætti útvarpið ekki að vera með einhverja verslun? Rökstyddu mál þitt. Verslunin er með einhverja þætti til sölu: barnaefni, útvarpsperlur og músíktilraunir ofl. Hvað er að því?? Þú mættir vera skýrari í máli, stebbi.blái áður en þú útlistar þessum vonlausu bull þeóríum um einkavæðingu RÚV. Tími til kominn að RÚV sé með netfréttir og þær vonandi uppfærðar reglulega. Þetta lítur þó eins og út og svo margt annað, ekkert nýtt við þessa síðu nema að skyndilega er innihaldið aðeins meira. Helst vantar að hægt sé að hlusta á hvað sem er og að vera með gríðarlega gott úrval upload-efnis. Lengi lifi RÚV!
Svo er mér skítsama þó einhverjir einka-fjölmiðlaeigendur séu að grenja yfir því að fá samkeppni. Ef þeir eru ekki nógu góðir, þá mega þeir vel fara á hausinn, enda flestir þeirra bara með eitt í huga: Auglýsingar. Ég sjálfur HATA auglýsingar á fjölmiðlum nema þær séu discreet. Af hverju ætti svo markaður ekki vera í deildum innan ríkisins? Ríkið hefur einfaldlega upp á betri þjónustu að bjóða fyrir hinn almenna borgara þegar til lengri tíma er litið.
Svo spyr ég eins og hver annar heiðarlegur maður: Af hverju á að halda niðri duglegum forstöðumönnum ríkisstofnana út af einhverjum gróðafíklum sem blindir bláir trúa eins og á Jesú og Jólasveininn?

26. Ágúst, 2003
Fyrirskipun Bush til Hollustuverndar eftir 11. Sept.
Já það er ekkert annað. Nú er komið á daginn að Bush gaf tilskipun um að hollustuvernd EPA BNA ætti að láta eins og allt væri í himnalagi með loftið í kringum WTC eftir fjöldamorðin hér fyrir utan.
The Environmental Protection Agency's internal watchdog says White House officials pressured the agency to prematurely assure the public that the air was safe to breathe a week after the World Trade Center collapse..EPA was persuaded to omit from its early public statements guidance for cleaning indoor spaces and tips on potential health effects from airborne dust containing asbestos, lead, glass fibers and concrete.. (Washington Post 23-08-03)

Þrátt fyrir hrikalega brunafýlu og verki í öndunarfærum fór maður aftur uptown til Verettu eftir hvern dag hér niðurfrá, kveikti á sjónvarpinu og sá Giuliani tilkynna hvað loftið sé hreint og saklaust "perfectly safe" og fullt af testum til að sanna það. Tók eftir á þessum sama tíma að loftsýnin í byggingu okkar voru oft gerð í Norðanátt, þegar vindinn af WTC stóð í hina áttina! Yikes. Rudy Giuliani sem sagt samsekur í því að misleiða almenning, hvað er svo sem við að búast frá svona asshole eins og Giuliani. Ekki er núverandi borgarstjóri betri, hylmir yfir Bush í ræðu sinni út af þessu máli og er þarna til að mjólka hið opinbera fyrir sig og sína vini. Stjórnmálamenn verður alltaf að líta á sem óheiðarlega menn nema þeir sanni sig í öðru.

22. Ágúst, 2003
Stóra Norræna hönnunarsýningin í Berlín.
Var að fá að vita að nokkrir af mínum hlutum voru valdir á norræna hönnunarsýningu í Kunstgewerbemuseum í Berlín. Þetta eru fínar fréttir, valdir voru vínrekki, escargot klukka og UL3 lampi. Opnunin er þó nærri fæðingardegi Pumpkin.

23. Ágúst, 2003
20 ár í BNA!
Í dag eru liðin akkúrat 20 ár síðan ég fór í Háskólanám í Bandaríkjunum. Man að ég lenti í Chicago þennan dag og endaði inn á kunningjafólki í Milwaukee í nokkrar nætur áður en mér var hleypt inn á stúdentagarða. Þetta voru tímar mikils upplifelsis og dugnaðar í náminu. Fyrsta önnin í Arkitektaskóla var mjög spennandi.

Björk á tónleikum í gærkveldi!

Við Donna sáum í gærkvöldi tónleika með Sigurrós og Björk á Coney Island. Þokkalega gott dæmi það, tónlistin frekar þung en virtist falla vel í kramið. Byrjað var að spila kl 7:30 og ekki hætt fyrr en 11:00. Gott ljósashow og Björk söng undir flugeldum í takt við tónlistina. Gríðarlega góður gítar hjá Sigurrós

15. Ágúst, 2003
Rafmagnslaust í New York
Örn frændi spyr: Jæja hvernig var rafmagnsleysið fyrir þér. Varstu nokkuð fastur í lyftu með brjóstgóðir ljósku?
Annars kemur hvergi fram í fréttum hversu lengi afmagnsleysið stóð yfir.

Halló Örn. 24 klst. ég var hvergi fastur en fékk mér rauðvín. 2 glös. Var í búð þegar þetta skeði, apóteki að kaupa eitthvað leyndarmál. Skyndilega slokknuðu ljósin og varaljósin (á batteríum) kviknuðu. Fólk labbaði út á götu og þar sást fólk streyma út úr öllum háhýsum. Einhverra hluta vegna voru allir að horfa uptown. Svo fór ég niður að Trinity og þar var fólk að horfa uptown. Svo fór ég baka til í húsið þar sem bakdyrastiginn er á Greenwich Street. Þar var sama sagan, fólk að horfa uptown, í átt að fyrrum WTC. Ég opnaði bakdyrahurðina og fór svo aftur út á götu og í búðina og keypti gallon af vatni. Ég var sá fyrsti til að hugsa til þess því þegar ég fór út klst seinna voru allir með vatnsflöskur í poka og ekkert vatn eftir í búðunum. Aðrir voru að djúsa bjór og notuðu tækifærið og duttu í það. Sumir voru greinilega óheyrilega stressaðir og agiteraðir. Ég bara flýtti mér aftur heim og réðist á þann ís sem eftir var í frystinum. Eins gott að nota tækifærið.
Svo fór ég á netið með aðstoð batterísins í fartölvunni. Tékkaði á tölvupóstinum og viti menn, það var smá surprise vírus, ormaskratti Lovesan sem komst framhjá vírusvörninni og krassaði henni. Ég slökkti strax á tölvunni með því að kippa úr sambandi. Ekki hægt með shut down. Notaði svo afganginum af batteríinu í rafmagnsleysinu að eiga við orminn ljóta, það var slæm viðureign og vonandi er njálgurinn horfinn, þó tölvan hegðar sér undarlega, copypeistar ekki alltaf ofl. Kannski er þetta bara post-njálg kláði.

10. Ágúst, 2003
Robert Zingg dáinn
Fékk þær hræðilegu fréttir að vinur minn Robert Zingg sem bjó með Japanskri konu sinni og dóttur í Japan dó í dag í mótórhjólaslysi í Fukuoka. Við unnum saman ca 93-95 á stofu Gaetano í New York, þar sem hann þaut um allt á línuskautum. Hann hefur lengi verið með mótórhjóladellu og segi ég ekki meir um það.
Mynd bætt inn þ. 1 Sept:  

3. Ágúst, 2003
Senator Robert C. Byrd.

Mæli sterklega með ræðum þessa bráðsnjalla Þingmanns, má lesa ræður hans ef smellt er á myndina af honum. Velja svo "Speeches," hægra megin.

2. Ágúst, 2003
War is a force that gives us meaning.

Var að klára þessa auðlesnu og aðgengilegu bók eftir Chris Hedges. Hér kemur skýrt fram mannúðlegt sjónarmið, skýrt sett fram af jafnaðargeði og með nægum tilvitnunum hvers vegna stríð eru heimskuleg. Hedges finnur ákveðn þræði sem eru sameiginlegir atburðum sem leiða út í styrjaldir, þær byrja alltaf á orðum. Þjóðernisrembingur einkennir hefndarþrá eftir atburði eins og 9-11 og stríð enda alltaf með ósköpum þó ekki sé nema sjaldan að satt sé frá. Sem blaðamaður hefur hann dekkað stríð um allann heim og lýsir hvernig stríð sé með ólýsanlegum spenningi sem er eins ánetjandi og áfengi eða eiturlyf. Í raun er þetta kannski minna heilsteypt bók heldur frekar samtíningur af vangaveltum um tilgang lífsins, fléttað saman við leikrit og bókmenntir Shakespeare allt til Grikkja. Í lýsingum af dauðategjum og líkum fórnarlamba stríðs kemur hans besta lýsing:
 "You will be me, the eyes call out, see what you will become. Even hardened soldiers drape cloth over such faces or reach out and push the eyelids shut. The eyes of the dead are windows into the world we fear."

31. Júlí, 2003
Setið og lesið á Chincoteague eyju, Virginia.

Sit hér í heimahúsi ættingja á Chincoteague eyju við Atlantshafsströnd Virginíufylkis. Þeta er smá verönd, ca 1,2m x 7m, með vírneti til að halda úti blóðþyrstum moskítóflugum. Húsráðendur hafa stórt plakat í glugga sem á stendur: "United we stand", Amerískur fáni blaktir við hún og stuðarar bíla fjölskyldunnar hafa "God bless America" límmiða. Fimmti hver bíll sem keyrir framhjá hafa svona pínulitla fánastöng setta í glugafalsinn og lítill amerískur fáni blaktir á fullri ferð niður götuna. Mest af þessu litla fánarusli er búið til í Kína og þjóðernisrembingurinn selst eins og heitar lummur.


29. Júlí, 2003
World Trade Center Memorial

Minnismerkið um WTC, ætlunin var að taka þátt í samkeppninni um minnismerkið. En Ameríkanar hafa snúið atburðinum í ástæðu til að styrkja föðurlandsástina, hvetja til útskúfunar á "öðrum þjóðbrotum" eins andstæðukennt og það er jú í eins fjölþjóða landi. Á síðasta ári var komið upp lista af nöfnum yfir fórnarlömbin og allir á einu bretti stimplaðir "hetjur." Fórnarlömbum morðingja hefur verið breytt í stríðshetjur. Þau eru síðan notuð í stríðsæsingi gegn öðrum löndum þar sem margfalt fleiri hafa síðan verið drepnir af hálfu Bandaríkjahers sumpart í viðleitni til að eiga við vandamálið, að töluverðu leiti til að hefna fyrir ódæðið. Líf útlendinga er víst minna virði, sama hver talan er. Þess vegna er mér spurn, hvar eru þau líf í þessu minnismerki? Á ekki að minnast allra fórnarlamba 9-11?

28. Júlí, 2003
Á Ocracoke eyju í Norður Karólínu, alger Paradís.

Sit hér við sundlaug á Ocracoke eyju, syðst á eitthvað 200km löngum sandrifum við Atlantshafsströnd. Það er löng keyrsla hingað en algerlega þess virði. Maður fer úr þessum tilgerðarlegu McDonalds og Pizza-Hut hverfum og götum sem hafa eyðilagt flesta smábæji Bandaríkjanna, yfir í meira lókal, eftir því sem sunnar dregur. Ocracoke er eyja sem maður kemst einungis á með (ókeypis) bílferju. Keyrir svo mjótt sandrifið syðst á eyjuna í lítið þorp. Hér er heitt og gott að vera, hæfilega mikið af fólki og hæfilega lítið af búðum og slíku. Þorpið umlykur smá vík, þ.e. höfn og þar eru nokkrir ágætir miðlungs matsölustaðir þar sem hægt er að sitja úti við og slaka á. Á svona stað gleymir maður skarkala heimsins, er gott að lesa, hvað þá ef maður er að skrifa bók, þá er þessi staður pottþéttur. Stutt er í strönd og mikið af húsum sem hægt er að leigja í viku í senn, ca. $700-$3000 á viku. Þetta er yndislegt!
Fyrstu nóttina vorum við á Bed+Breakfast stað og fluttum út eftir fyrstu nóttina. Loftkælingin var á fullu svo ég fékk kvef og kælivélarnar með hávaða beint fyrir utan gluggann. Sumt fólk er bilað, en ég hef aldrei skilið hvað Kanar eru uppteknir við að nota loftkælinguna strax og lofthitinn útivið verður loksins þægilegur eftir langann kaldann vetur.

23. Júlí, 2003
Skothríð, þyrlur og löggubílar.
Það eru ekkert smá læti hérna fyrir utan. Löggubílar keyrandi framhjá með miklum látum og þyrlur fljúgandi beint fyrir ofan aðeins til norðurs.  Fór rétt áðan á Starbucks að ná í kaffi og sá aðeins ofar á Broadway hrúgu af löggubílum. Kom svo inn og athugaði á vefsíðum og kveikti á útvarpinu og greinilega einhver skotmaður í City Hall, hér tæpum 1 km ofar. 2 dánir.
Einn þeirra er borgarfulltrúinn James Davis. Fann þennan áhugaverða texta um Davis, á Brooklyn Skyline:
Councilman James Davis, a Brooklyn Democrat, also complains about threats made by the mayor: “I was there to hear him make a threat at Gracie Mansion. And the mayor made it clear that there would be retribution against people who voted against the property tax hike,” Davis said, adding, “that [Bloomberg] would campaign against us.”  According to Davis, a few council members stormed out of the room after Bloomberg’s remarks. “They were insulted and offended by the fact that he would say it,” Davis said.
Asked to explain what the mayor’s remarks meant, Davis said: “Basically, if you weren’t with him, he would do all that was in his power to make sure that you weren’t re-elected.”  “When a man, who has $5 billion, says ‘all that is in his power,’ you say one and one gives you two every time,” Davis continued. “When you can do basic math, you understood loud and clear what he was saying in that room.”... “Many councilmen didn’t want to sign on to the property tax [hike],” Davis said. “But, because they were afraid of the retribution of Gifford Miller, they signed on to it.” Last Wednesday, Jennings and Davis were among three councilmen punished by Miller for voting against the 18.5 percent property tax hike. Jennings was thrown off the powerful Finance Committee and Davis was removed from the Cultural Affairs Committee. Jennings also complained that their parking permits were been withheld as a punishment. “I’m not going to forget his actions towards me when he runs for mayor,” Davis said of Miller. 
http://www.brooklynskyline.com/news_article.asp?na=282

Davis var drepinn áðan. Hvað þýðir svona? Ég fann þetta bara á netinu áðan og sel það ekki fyrir hærra verð en ég keypti það. Þessi Davis er dauður og borgarstjórinn Bloomberg útskýrir atburðarrásina í smáatriðum um 1 klst eftir að atvikið skeði, áður en lögreglurannsókn hefur einu sinni farið fram...!  "Morð á móti lýðræði, bla, bla..." Er þetta gruggugt, eða er ég að lesa meira í þetta en er fyrir hendi?

21. Júlí, 2003.
Pósthússtræti 9.
Byggingin, þessi "ljóta", tilheyrir sínum tíma líka, svokallað curtain-wall system sem ruddi sér til rúms ca. 1950. Enginn byggir svoddan hluti í dag, nema ákveðin afbrigði og ekkert tengt stílnum. Kæmi mér ekki á óvart, ef ekki er þegar búið að skipta um original framhlið, að húsið yrði sett á skrá sem módernisma fornleifar eftir 20 ár.

Varðandi her á Íslandi.
Við höfum ekkert efni á að hafa her. Herlið er allt of dýrt fyrirbæri. Við rétt meikum það að halda úti þyrlu landhelgisgæslunnar! Í besta falli er raunhæft að styrkja og bæta Víkingasveitina.
Eitt þykir mér merkilegt: Sömu menn og ræða um of mikil ríkisumsvif vilja fá her. Við erum að tala um stóraukin ríkisútlát. Og fyrir 21.000 manna varalið???? Hvað er að ske hér, eru menn að missa vitið?
Eru stuttbuxnadrengirnir núverandi -og fyrrverandi- með einhvern vopnainnflutning á prjónunum? Fá einkaleyfi fyrir handsprengjum og slíku? Mikið má græða á svoleiðis drasli, miklu meira en á skólabókum, hvað þá heiðarlegri vinnu! En til þeirra sem styðja heruppbyggingu á Íslandi mætti maður spyrja þeirrar einföldu spurningar: Hvað á að skera niður til að borga fyrir þessa vitleysu? Eru það elliheimilin? Atvinnuleysisstyrkir? Barnaskólar? Hafnargerðir? Háskólar? Ellilaun? Vegagerðir?  Brúar og gangnasmíðar? Landsspítalinn? Geðdeildin? Leikskólar? Lánasjóður Íslenskra Námsmanna?
Eða á að borga þetta með því að hækka skatta eða koma upp með nýjann nefskatt?
Ekki á að borga þetta með nýjum stórfelldum lánum frá erlendum bönkum sem kannski tengjast svo  vopnaframleiðendunum?
Eða á að borga fyrir þetta með því að stytta sumarfríin? Lengri vinnudegi?
Fínt væri að fá útskýringu á hvar eigi að byrja í niðurskurðinum. Ekki getur "mamma borgað" endalaust! Svar óskast sem fyrst. Tak for det. Útbjó þessa fínu mynd af BB (sem ég setti líka inná Malefnin.com):

 

19. Júlí, 2003
Fast Food Nation
Var að klára þessa bók eftir Eric Schlosser. Hér er lýst sögu skyndibitastaða, aðferðum fyrirtækjanna og hvernig þau hafa sölsað undir sig veitingahúsamarkaðinn og hafa breytt markaðsaðstæðum um þver og endilöng Bandaríkin. Mjög áhugavert og merkilegt hvernig þessi fyrirtæki eru rekin og hafa gjörbylt matarframleiðslu innan BNA. Ég keypti hana því ég var forvitinn að komast að því hvers vegna örfá fyrirtæki einoka matsölu meðfram þjóðvegum Bandaríkjanna. Bókin svaraði þessu að hluta til og útskýrir ýmislegt annað forvitnilegt og óhuggulegt, eins og hvernig búpening er slátrað í ferkílómetravís eftir að hafa verið gefið hormónalyf og vaxta-aukandi efnasull. Eða hvernig afnám reglugerða í tíð Reagan hefur valdið því að kúrekinn er kominn á útrýmingarlista og bændur vinna nú hjá stórfyrirtæki og mestallt kjöt fer í gegnum einungis ca 6 stórfyrirtæki. Eða hvernig sláturhúsafyrirtækin sjálf hafa komist í þá stöðu að geta ein framfylgt gæðastöðlum kjötsins, í staðinn fyrir heilbrigðireftirlitið. Hvernig bragðefnum er bætt í allt til að það sé bragð af öllu, eftir langa frystingu. Merkilegur listinn á bls. 125 yfir bragðefnin í Burger King milkshake! Hvernig staða kartöflubænda hefur breyst, hvernig komið er fram við starfsmenn osfrv. Gef þessu þá einkunn að allir sem éta á skyndibitastöðum í USA eiga að lesa þetta. Sjálfur segi ég mig úr þessum hóp, nema í undantekningartilvikum.


14. Júlí, 2003
Avery Arkitektúr bókasafnið
Sendu mér bréf sem ég fékk í dag, báðu mig um að gefa einhverjar teikningar á safnið. Allt í lagi dæmi það, þetta er sjálfsagt eitt allra besta arkitektúr bókasafn í heiminum með góðu safni teikninga. Hér er listi þeirra yfir núverandi teikningasafn:
Avery

14. Júlí, 2003
Þyrlur úr Keflavík til Líberíu.
Það er áhugavert með brottför hersins frá Keflavík að ef Ísland hefði lýst andstöðu gegn stríðinu, þá hefðu hægri menn skellt skuldinni á brottför hersins á "helvítis vinstri mennina." Raunin hefur orðið önnur og greinilegt hverjir eru vinir eftir veittann stuðning. Ekki það að mér sé mikið sama hvort stöðin er eða fer.
Heyrði í RÚV á netinu, fréttir dagsins, sem voru engar fréttir, að kanaþyrlur voru fluttar til Líberíu, N.B. þar sem þeirra er þörf. Runninn ætlar að bjarga mannlyninu, haven´t you heard? Hann er kannski bara sjálfur Messías?
Hvaða máli skiptir menn ef þessar þyrlur færu bara aftur til USA where they came from? Myndi engu breyta fyrir kalla hvað æstasta út í þessu. Þeir myndu fara í vinnu, vinna, fara úr vinnu, horfa á meiri æsifréttir, borða kvöldmat, ropa, prumpa og sofna svo sælir og ánægðir og dreyma drauma um laxveiði, fjallgöngur, þrýstnar gellur á súlustað og svo jeppann inn og út og inn í bílaþvottastöðina. Þyrlurnar skipta Íslendinga akkúrat engu máli og er Kana að ákveða hvað þeir gera við eigur sínar. N.B. Meine skattpening! Ja, ja!
Og hvað halda menn að Bush hafi tíma til að svara bréfum frá einhverjum fyrrverandi víking með krullað hár lengst norður í ballarhafi. Það er verið að loka hundruðum ef ekki þúsundum herstöðva um gervöll Bandaríkin og um allann heim. Davíð kallinn verður bara að bíða í biðröð eins og allir hinir því verið er að hagræða vegna skorts á herafla í Írak ofl stöðum þar sem olíuauður er stórlax leikaranna umhverfis Runna Pjakks, morðingjans frá Texas.
Skelli þessu á Innherja á visir.is

13. Júlí, 2003
Fínt veður!
Hér er hlýtt og sólin skín. Maginn á Donnu stækkar ört og nú er hún komin 6 mánuði á leið.
Hér kemur smá pæling:

Ég straujaði straubrettið
Ég skrifaði á blýjantinn
Ég fann lyktina af nefinu á mér
Og hannaði bílskúr í laginu eins og bíll.


1. Júlí, 2003
Busy helgi aflokið.
Opnunin hjá John Elder var fín, mikið af gestum. Playboy tímaritið tók viðtal við listamennina, þ.á.m. mig, og svo voru konurnar 2, Pat og Robin frá PBS í að safna efni í heimildarmyndina um mig. Rakst á þetta uppskrifað á vefsíðu
Furniture Society eitthvað smá uppskrifað fyrir neðan 2. mynd, ath. Thordarson...
Daginn eftir, Föstudag, fórum við ritstjórinn Laetitia Wolff niður í Philadelphiu að skoða hönnunarsafn á University of Pennsylvania kampus og sáum svo stúdíó
Josh Owens í miðborginni.
Svo á Laugardag fórum við Donna til foreldra hennar í Kerhonkson í sumarblíðuna, lágum í sólskini úti á palli og lásum og drukkum bjór eða þannig já. Gott að komast í sveitasæluna eftir langdvalir í borginni.

23. Júní, 2003
Fínt veður. Hmmm, hvernig er veðrið, ekki bara fínt? Já voða fínt veður!
Talandi um veðrið, þá er loksins komið sumar, sól og um 25 stiga hiti. Sumarið hefur verið lengi á leiðinni og mikið rignt. Fór því út að hjóla á stuttbuxunum og fæ sólbrúnku og æfingu, ca. 45 mín. ca 15 km. Þandi hjólið vel, mætti kaupa nýtt hjól fyrst ég er svona duglegur við þetta, er að spá í þetta hjól, sem fékk glimrandi review í consumer reports:

http://www.giant-bicycles.com/us/030.000.000/030.000.000.asp?lYear=2001&bikesection=8801&range=22&model=10381

22. Júní, 2003
Secretary with or without drawers.
Skrifborðið nokkurn veginn tilbúið, hér eru fyrstu myndirnar, með smá aukastykkjum tengdum dæminu, guðaveigum ofl. Meðal annars nýja hönnunin, þráðlaus sími eins og banani í laginu, búinn til úr banana.
Opnast út í borð, í borðplötunni eru kvenmannsnærbuxur steyptar í glært resínið. Sem sagt "drawers" í skrifborðinu eru nærbuxur.

Konuna er sem sagt hægt að leggja
ofan á borðið. Yeah!


22. Júní, 2003
Dónaskapur í New York
Það er erfitt að vera alltaf vingjarnlegur í New York, en maður reynir samt. Fólk er oft hranalegt og maður átti fyrst erfitt með að skilja af hverju fólk er svona dónalegt í borginni. En svo þegar maður býr hér í einhver ár, þá áttar maður sig á að maður er alltaf í þeirri aðstöðu að einhver bjáni er að reyna að selja manni eitthvað og notar sér góðvild manna til að selja annað hvort drasl eða sjálfann sig. Fólk lítur á góðmennsku sem lúserahátt og notfærir sér slíkar manneskjur sér til framdráttar. Dæmi, leigubílstjórinn fer aukarúnt, búðarkallinn selur manni eitthvað sem manni vantar ekki og notar sálfræðitrix. Bæta má við að íNew York safnast saman fólk sem er eð reyna að koma sér áfram í lífinu og það blandast fólki sem hefur gefist upp á því sama. En það má ekki missa grunneðlið og það er nauðsynlegt að vera almennilegur við hvern sem maður hittir. Það er líka nóg af slíku fólki hér.

21. Júní, 2003
Rigning og Írak.
Það hefur rignt mikið á síðustu 2 mánuðum. Heimþráin skýtur upp kollinum í svona veðrum. Hundarnir neita að gera sínar þarfir í rigningu, oj bara. Svo skilja þeir sín stykki undir vinnuborðinu hjá mér. Kannski eru þeir að reyna að koma á framfæri einhverjum skilaboðum?
Svo að Írak; verið er að pikka út Kanana með leyniskyttum og handsprengjum, random. Taldi 192 dauða hermenn á vefsíðu Washington Post í gær. Ég er farinn að halda að aðalvandamál stjórnarinnar í Washington sé að Írak þarf á massívu uppbyggingar-SÓSÍAL prógrammi að halda, sem er vissulega á skjön við kenningar þess hóps sem umkringir snillinginn frá Texas. Verið getur að prófsteinn hægri hagfræðinganna afsannist í Írak, eins og í svo mörgum öðrum löndum. Það tók áratugi að byggja upp gott sósíalkerfi í bland við markaðskerfi á Norðurlöndunum, þar sem lífið er best á jarðarkringlunni. Þar afsannast allt með að það sé annað hvort markaðskerfi eða sósíalkerfi, og Norðurlönd sanna einnig að báðir pólarnir eru fanatík. En Írak þarf á meiriháttar vítamínssprautu að halda, hún er bara ekki sjáanleg frá frelsurunum. Það þarf meira til en Bandarísk olíufyrirtæki.
Talandi um Írak, þá birtu WNYC myndina mína með íraks völundarhúsinu, Gallerí #3, mynd #26  >
smella hér<

21. Júní, 2003
Nýtt verk
 Gerði þessa rosalegu mynd á Photoshop með aðfengnum ljósmyndum. Hér sést andlit Bush á ímynd Jim Morrison með Ali í forgrunni.

16. Júní, 2003
Fréttir
Einn góðann veðurdag mun maður kveikja á sjónvarpinu til að horfa á fréttir. Þulurinn mun líta í myndavélina og segja; "því miður eru engar fréttir í dag, ekkert skeði. Góða nótt." Þá mun víst vera kominn á friður í heiminum og engar áhyggjur að hafa af neinu.

13. Júní, 2003
Ja, hver djöfullinn!
Sá frétt í New York Times um að breyta ætti númeri á þjóðvegi vegna trúarofstækis. "But this spring, politicians in those three states, led by Bill Richardson, the governor of New Mexico, petitioned the federal agency that handles such things to change the highway's number, arguing that the New Testament's association of 666 with Satan was impairing the economic vitality of the towns along its route." Kanar eru svolítið klikkaðir. Já gáfulegt að einbeita sér að svona vitleysu. Efast ekki um að þessi breyting komi sér vel fyrir fólkið í hjólhýsunum, bæti almenna menntun, lækni fátæktina og bjargi fullt af fólki frá dukknun úr táradal hins daglega amsturs.

12. Júní, 2003
Beðið eftir rigningu.
Vann með arkitektinum Jim í dag. Þar var blaðrað og m.a. kona ein þunn, hún að venju skeggræddi mikið um veðrið og svo á að rigna seinna í kvöld. Veðrið er alltaf merkilega drjúgt umræðuefni. Og þó.
Nú þegar herinn á Miðnesheiði virðist vera á förum bætist við að propagandaminister
Herr Rumpsfeld stoppar af nýbyggingu NATO ef Belgar vogi sér að leyfa málaferli gegn glæpamönnum hans í Washington. Niðurskurður heitir þetta á fræðimálinu Hagfræði en yfirgangur yfirvalda BNA er merkilegur. Hótanir og frekja. Morð líka, ó já. Teljarinn á iraqbodycount.com er kominn upp í 5000 manns. Er ekki annars morð að drepa annað fólk? Og eru ekki drápsmenn það sem við köllum morðingja. Almenningur í Bandaríkjunum er úti að aka, fær ekki nóg af upplýsingum um hvað er að ske. Það virðast annars vegar vera fánaberarnir sem garga þjóðsönginn með tár í öðru auga og hitt á sigtinu. Hins vegar eru kanar sem reyna að finna aðrar upplýsingar en þær sem eru á auglýsingastöðvunum. Netið er stórkostlegt.
Nema rakst annars á þessa sick vefsíðu í dag, ekki gá nema hafa sterkar taugar!
http://www.bonsaikitten.com/gray.html

10. Júní, 2003
Steyptur einkaritari.
Steypti einkaritarann í kvöld. Allavega stærsta hlutann. Hér voru viðstaddar 2 konur sem vinna á sjónvarpsstöð að vinna að þætti um mig, þær tóku eitthvað af myndum við prósessinn. Nú er að kýla á að klára gripinn um helgina, kannski er það bjartsýni, sjáum til.
Helst vantaði í daginn að fara út að hjóla til að fá smá orkubúst. En kannski þarf þess ekki, það er oft mikið apparat að steypa úr resin og agiterandi mjög því maður er með gasgrímu og græjur og resinið harðnar á nó tæm.

3. Júní, 2003
Einkavæðing Ríkisskólanna.
Fínt mál að til eru einkaskólar. Margir mikils virtir menn hafa komið upp ótrúlega öflugum stofnunum.
En það er með þessa hugmynd að færa ríkispening á per haus með nemanda yfir í einkaskóla. Ó-já. Fyrst verður maður að benda á að formúlan er runnin undan rifjum íhaldsins í BNA. M.a. hefur "snillingurinn" Bush þetta á stefnuskrá sinni og ekki er nú allt gott sem frá honum kemur. Já, þar með talið þessi afleita stefna sem kemur úr aulahagfræði gróðaklíku Bush/Reagan. Formúlan með að senda tékka á "einkaskólana" einfaldlega gengur ekki upp:
1. Ef einkaskólar fá á annað borð beina ríkisstyrki, þá eru þeir ekki einkavæddir, heldur af-ætur á hinu opinbera.
2. Færsla peninga úr núverandi opinberu skólakerfi minnkar þá gæði núverandi skóla til muna. Þeir nemendur "sem eftir verða" fá lélegri menntun. Formúlan gengur ekki upp.
3. Notaður yrði sameiginlegur peningur landsmanna til að auka á stéttaskiptingu og óréttlæti innan þjóðfélagsins. Peningur skattgreiðenda væri notaður í einhverja sjálfskipaða elítista og klíku-uppa-skóla.
Athugum málið nánar: 100 nemendur eru í ríkisskóla X. Skólinn fær 100 milljónir í ársrekstur. 15 nemendur fara í einhvern "einka"skóla. 85 nemendur eru eftir, og fá því 85 milljónir til ársreksturs miðað við 100 milljónir áður. Skólinn er þó samt rekinn með næstum sömu kostnaðarliðum og áður. Það þarf að þrífa sömu stofurnar, halda uppi sama leikfimisalnum, halda í sama bókasafnið, næstum sama kennaralið og tölvu- og rafmagnsreikningar breytast lítið. Því yrði skóli X með 15% minna af "tekjum" en áður. Allir vita að almenn regla er að veraldleg lífsgæði aukast eftir því sem peningar eru meiri. Sama gildir um skólana. Skóli X myndi því falla í gæðum og þ.a.l. 85% nemenda fá lélegri menntun á meðan hin 15% KANNSKI fái betri menntun. Ath: Kannski.
Nei, þetta dæmi einfaldlega gengur ekki upp. Það að færa pening úr hverfaskólunum eða á annað borð færa peninga úr opinberum skólum væru ferleg mistök. Greinilegt að lengst til hægri menn kunna ekki að bæta skólakerfin frekar en að bæta efnahaginn almennt. Þeirra patent-lausnir á skólamálum eru svo sannarlega ekki betri en margreyndar basic kennsluaðferðir síðustu hundrað ára. Það eina sem þarf til að bæta skólakerfið er að setja meiri pening í það frá hinu opinbera og styrkja allt skólastigið af alvöru með nauðsynlegum tæknivæðingum og aðgangi að fræðiefni. Það hefur margsannað sig að vera okkar besta fjárfesting til lengri tíma litið. Svo gengur það bara ekki að vera með eitthvað stuttbuxna-hálfkák soðið beint upp úr kokkabókum Repúblíkana-sölubrellukalla í Ameríku. Börn eiga betra skilið en þetta bull.

1. Júní, 2003
Sunnudagur, merkilegt nokk. Vel tókst til í gær með einkaritarann, smá framför þar. Svo er hér heimavið skúringamaður að þrífa okkar pleis, kemur vikulega og er mikil hjálp af honum, yndislegur maður frá Equador en mjög hræddur við að nást.
Fór á Starbucks að lesa nýju stóru feitu bókina mína um Andy Warhol. Líst vel á og gríðarlega þokkalegur innblástur í efniviðnum.
Kom svo heim og kveikti á C-Span Book-TV og þar var langt viðtal við eitt af mínum uppáhalds spekúlöntum, Noam Chomsky. Ákaflega merkilegt efni og ég sofnaði út frá honum og vaknaði við að Donna var búin að búa til kvöldmat. Þá var komið viðtal við rugludallinn David Horowitz sem berst gegn öllu líbó eins og vel borguðum hægri manni er tamt, kvartaði hann sárann yfir að New York Times hafi ekki skrifað grein um hann í tíu ár, sniff. Kannski er það skiljanlegt enda með eindæmum fordómafullur maður og nokkuð augljóslega borgað í rassvasann af NRA, National Riffle Association.

31. Maí, 2003
Laugardagur
Ó já er það ekki merkilegt, Laugardagur, skýjaður dagur, við og við smá úði og fínn hiti til að rembast svolítið. Fór því út að hjóla, mitt venjulega 45 mín-klst púst meðfram Hudson ánni. Svei mér þá ef sumar hinar bollurnar hafi ekki lagt á sig, allaveg eru þær hægari að færa sig þegar ég kem brunandi.
Skráði mig í gær í hönnunarsamkeppnina um minnisverk fyrir World Trade Center. Einhvern veginn er þó erfitt að vinna í þessu, mér kemur aðallega í huga einhver obnoxious verk, of pólitískt gagnrýnin eða annað sem væri "ekki viðeigandi". Sjáum til hvernig hugmyndir þróast þegar líður að deadline-inu. Kannski get ég kreist út eitthvað sem er Politically Correct.
Er svo að vinna í einkaritaranum (sjá að neðan), mála grindina

30. Maí, 2003
Varúð, ekki nota Hostway vefþjón!
nafnið veffari.com frátekið fyrir mig af fyrirtæki sem heitir Hostway, Chicago. Þeir algerlega klúðruðu vefsíðu uppsetningunni.Yikes! EKKI versla við þessa glæpamenn. Á fyrstu 2 vikum eftir að ég skráði veffarann í gegnum þá skildi ég eftir 5 skilaboð á símsvaranum, 10 e-mails og 5 repair-forms á vefsíðu þeirra og ekkert svar, ekki múkk. Vá. Hrikalega lélegt. Svo ég sendi kvörtun til Better Business Bureau. Sendi póst til Hostway að ég væri að gera það og viti menn. Það heyrðist frá Hostway. "skiljum ekki hvað er að". Ha! Þeir auglýsa 24/7. Ég þurfti að leita að símanúmerinu, slá því upp á Google og leita í gegnum fyrirtækja skráningar til að finna það. Dísös...
Svo í staðinn fyrir að skrifa hér hef ég verið að standa í einhverju fokki með óheiðarlegt fyrirtæki með ENGA þjónustu. Ekki það að Better Business Bureau geri neitt í þessu.

Er hægt að treysta efni History Channel?
Ég horfði um daginn á heimildarmynd í History Channel um ógnarverk Sadam. Þar kom margt merkilegt fram, en þeir minntust á líkin í Basra (þessi með hermönnum úr Íransstríðinu) og í þættinum, glænýjum var haldið fram að líkin hefðu verið fórnarlömb dauðaseveita Saddams. Rétt skal vera rétt og þarna er heldur betur með rangt mál farið. Sjá blogg mitt frá 6. Apríl. Þegar kemur að því að segja frá ógnarverkum Saddam er eins gott að fara með rétt mál því nú setur mnaður spurningarmerki við allt hitt. Sem er ekki það sem á að koma út úr svona glápi.

21. Maí, 2003
Kenni í haust.
Skólastjórinn hringdi í mig frá Rhode Island School of Design og samþykkti mig í kennslu í haust. Það verður ágætt, er að hugsa um að taka fyrir efnivið sem tengist iðnhönnun og götuhönnun. Það verður ágæt tilbreyting.

15. Maí, 2003
Ólafur Ragnar Grímsson gifti sig.
Til hamingju. En fyrir nokkrum árum síðan sá ég "umræðu" stuttbuxnadrengja á vísir.is að það væri skandall að Ólafur Ragnar og Dorritt væru ekki gift, að þetta "sæmdi ekki forsetaembættinu" og þar fram eftir götunum. Mér þótti leitt að sjá umræðu á Íslandi vera spólandi í sömu brundslettunum og á kjól Mónikku hér um árið. Það er algerlega mál nafna míns og spásu hvort hann giftir sig eða ekki. Sannarlega er það ekki einhverra hægri fanatíkkera að ákveða, sem lesa allt sitt sauruga spunabull úr sorpritum repúblíkana í trúarkjaftæðisstíl varðandi heiður og föðurlandsást og spýja þessum ósóma yfir land og þjóð eins og dáleiddir og uppæstir Jesú Zombies úr suðurríkjunum.
Nei. Maðurinn og konan giftu sig. Það er þeirra mál og ákvörðun.

14. Maí, 2003
Dead or Alive, motherfucker.
Heyrði kanaforsetann lýsa yfir að hann muni hefna fyrir hryðjuverkaárásirnar á Rhyiadh. Að Saudi hafi ekki gert nóg gegn terrorisma. Sjálfsagt er eitthvað til í því. Mér er spurn, hvar eru Ósama bin Laden og Saddam? -og hvernig var öryggið hjá Bush fyrir 9-11? Er þetta ekki bara sami harðlínufrasi og hefur haldið Ísraelum í greipum terror ógnar? Sama hetjugarg og notað er til að réttlæta árásir gegn hinum og þessum löndum og að skerða mörk einstaklingsréttar innan Bandaríkjanna?

9. Maí, 2003
Einakrekin fyrirtæki eru betur rekin en þau hjá hinu opinbera. Eða hvað?
Það er ósannað að fyrirtæki sé alltaf betur rekið hjá einkaaðila en hjá ríkisaðila. Þetta fer á báða vegu og staðhæfingin því röng. Get nefnt andskoti mörg dæmin um það hér í usa. Eftir því sem ég bý hér lengur er ég meira og meira ósannfærður. En ég hélt þetta væri regla fyrst þegar ég kom til usa. Ein spurningin er til dæmis fyrir hvern er fyrirtækið betur rekið? Er það betur rekið fyrir hluthafana? Sjálfsagt er það rétt í meirihluta tilvika. Enda enginn þröngur hópur hluthafa í opinbera fyrirtækinu. En er fyrirtækið betur rekið til að gefa góða þjónustu fyrir kúnnana? Stundum, en óskaplega oft ekki. Betur rekið fyrir starfsmennina? Í hálaunastöðum já, annars ekki. Það fer svo mikið eftir hvað er verið að bjóða til sölu eða hvaða þjónustu er verið að bjóða. En reglan sem ég hef séð er að fyrirtækið er gott við kúnnana fyrstu árin og svo fer þjónustan niður holræsið eins og hver annar óþarfi og fyrirtækið getur vel lifað á auglýsingafargani, vægum blekkingum óprúttinna sölumanna og að borga starfsmönnum skítalaun eins og tíðkast hjá Superman hetju hægri-hagfræðinganna: Sam Walton hjá Walmart. 3ja vikna sumarfrí er nebla nær óþekkt fyrirbæri í þessu landi fyrirtækja-á-bakvið-stjórnmálamenn og þar sem allt snýst um að svindla semmestann pening frá öllum hinum svindlurunum. Hvað hefur orðið um gæðin, heiðarleikann og það að reyna að gera vel við annað fólk?

8. Maí, 2003
Bloggið á leið upp á veffarann
Loksins búinn að ná í nafnið veffari.com, þetta er nú meira helv/$#"## vesenið stundum. Kemur manni í óskrifstuð. Þessi fyrirtæki sem selja manni vefspeis og hafa svo oft ekkert símanúmer. Þeir selja manni þjónustu og um leið og búið er að rukka, þá er ekki einu sinni svarað í síma! Helvítis svindlarar. Næst tékka ég á hvort fyrirtæki er með síma. Sami server svarar ekki tölvupóstum eða þessum work orders útfylltum on-line. Einkaframtakið er alltaf best rekið og með bestu þjónustuna, greinilega alltaf rétt. Smá tips: Ef menn fá sér vefsíður, fyrst fara á vefsíðuna sem býður þjónustuna. Ef á vefsíðum þeirra er símanúmer þar sem hægt er að hringja og tala við einhvern, þá hringja og spjalla við þá. Það sýnir að þeir eru með á nótunum og ekki bara í  business til að féfletta menn.

6. Maí, 2003
Templeitur
Hmmm. Template. Flaug inn um eitt eyrað í gær og hringsólaði á milli eyrnanna. Það að vera templeitur... Maður sem hagar sér eftir fyrirfram ákveðnu mynstri! Svona eins og stuttbuxnadrengur, ætti vel við í samhengi við temple, horfa til Valhallar eða tilbiðja hagfræðinga.
Kanar eru til dæmis mjög templeitir. Með svipaða klippingu, fara mikið í kirkjur, eru ofur-kurteisir og almennt ósjálfstæðir. Telja sér og trú um að þeir séu einmitt voða sjálfstæðir, svona á bakvið fánann og föðurlandsástina.

4. Maí, 2003
Sunnudagur
Vekjaraklukkan æpti kl. 7:00 í morgun og ég fór á lappir kl. 10:30. Það sem byrjar vel endar vel. Eyddi svo 2 klst í að þrífa tölvuherbergið og kítta holu sem er beint yfir tölvunni. Þegar hvessir útivið blæs úr þessari holu og í verstu kviðunum rignir ryki og skít  niður á prentarann, tölvuna og lyklaborðið. Í svona gömlu húsi veit maður ekki hvað felst í veggjunum og í gólfunum (músaskítur?!). Fór svo í góðann hjólreiðatúr, 10 mílur á 45 mínútum upp að 23. götu. Veðrið úti eins og fallegur Júlídagur heima í Reykjavík. Spikið ætti að leka af manni við svona hressandi áreynslu. Fullt af fitubollum á stígnum en með því að skransa í borgarstjórabeygju í kringum þær er hægt að halda ferðinni. Ókey, best að halda áfram að vinna í einkaritaranum.

2. Maí, 2003
Secretary without drawers.
Er að vinna í stykki á sýninguna "Naughty" í New York, sem verður í John Elder Gallerínu. Sýningin á að vera fyrir uppáferðarhúsgögn. Húsgögn fyrir samfarir eða gerð svo gott sé að hafa samfarir á þeim. Nátturulega list-tengd húsgögn. Eitthvað hefur þetta verið að væflast fyrir mér með að útfæra hlutinn en nú er það komið á góða leið. Þetta verður lítið skrifborð (þýtt á ensku secretary) sem hægt er að leggja upp og þá leggja einkaritarann á það í samfarastellinguna. Svona er lífið. Er ekki allt list nú til dags? Engar skúffur á borðinu skýrir út nafnið; Secretary without drawers.

2. Maí, 2003
"Skattalækkanir Reagan ollu góðærinu í tíð Clinton."
Heyrði þennan nýlega. LOL-þvílíkur frasi. Og ekki í fyrsta skipti sem ég heyri hann. Af hverju var uppgangurinn í tíð Clinton ekki alveg eins Nixon að þakka? Hann var repúblíkani, ekki satt? Tók bara svolítinn tíma fyrir aðgerðir Nixon að virka(!) Talandi um Nixon, þá erfði Jimmy Carter fjármálaóreiðu Nixon-Ford-Kissinger, með tilheyrandi atvinnuleysi og þjóðfélagsvandamálum sem eru óleyst enn þann daginn í dag.
Skattalækkanir Reagan ollu allskyns vandamálum í Bandarísku þjóðfélagi og afnám hans á reglugerðum olli m.a. Savings and Loan svindlinu sem kostaði skattgreiðendur gríðarlegar fjárupphæðir. Reagan-Bush1 skildu ríkiskassann eftir í þvílíku skuldafeni að aldrei datt nokkrum manni í hug að það væri einu sinni hægt. Sló út niðurgangnum eftir Víetnam stríðið.
Nei, Reagan er ekki valdur að uppgangnum á tímabilinu 1993-2000. Það er í besta falli óskhyggja. Lílegast þó léleg lygi.
Mun betri skýring er að ör þróun í tölvum og markaðssetning þeirra hafi valdið hinum mikla vexti í tíð Clinton, sérstaklega þegar hvaða jói sem er gat braskað á netinu eftir 1995. Gott fyrir þá sem voru betur stæðir en hafði takmörkuð áhrif á þá lægst launuðu
, sem hvort eð er eru langt undir fátækrarmörkum þrátt fyrir fulla finnu. x

2. Maí, 2003.
Sögukennsla 101.
Það er gömul tugga hægrimanna að vinstri/miðjumenn kunni ekki á fjármál. Lítum á dæmi úr sögunni. Þegar hægri menn voru við völd í BNA, þ.e. lengst til hægri:

1920-1931: 3 Repúblíkana forsetar í röð og repúblíkana þing. Mikil spilling, mútur eins og í dag. Endaði í kreppunni dásamlegu sem allir vita um. Það er þá fjármálavitið!
1968-1975: Nixon-Ford-Kissinger, repúblíkana þríeykið. Carter erfði fjármálaóreiðuna og fékk á skellinn fyrir. Reagan vann á frasanum "are you better off than you were 4 years ago". Merkilegt hvernig velgengni í fjármálaheiminum hefur með pep rallý að gera.
1980-1991: Reagan með afnám reglugerða og peningum stýrt til toppanna og þeirra sem þegar hafa mikil efni. Endaði með kreppunni sem byrjaði með verðbréfafallinu haustið 1987 og kreppu og ömurlegu atvinnuleysi í BNA fram til 1992-1993. Það er þá fjármálavitið! Ég man að eldri Bush sagði um sumarið 1990 þegar ég var í fyrsta og eina skiptið á ævinni án atvinnu: "The economy is strong and robust". LOL
2001-: Bush forseti og núna reppúblíkana þing. verðbréfafall úr DJA 12,000 í tíð Clinton er núna í 7500-8500. Það er um 30% fall á verðbréfum! Að maður tali ekki um að hægrimennirnir með simpansa leikbrúðuna eru búnir að fokka skuldleysi Bandaríska ríkisins og demba því í skuldahala sem mun draga dilk á eftir sér í áratugi! Og atvinnuleysið í hámarki aftur. Það er þá fjármálavitið!
Greiðum miðju-flokkum atkvæði, hægri menn bara segjast vita um fjármál, en stefna langri uppbyggingu góðs heilbrigðis- velferðar- og skólakerfis á Íslandi í eitt stórt spurningamerki. Hægri menn á Íslandi apa allt upp eftir repúblíkönum, sem hafa vægast sagt vafasamann skilning á ríkisrekstri! So there.
Hér er svo smá aukabónus um hvernig er farið með skattpeninga Bandaríkjamanna:
http://www.nationalpriorities.org/

1. Maí, 2003
1. Maí.
Í dag er 1.Maí og frí í flestum löndum. Nema Ameríku að sjálfsögðu, þar sem 1. Maí var reyndar "fundinn upp" (Chicago ca 1880 ef minni mitt skeikar ekki). Ekki einu sinni minnst á þetta sem frídag eða neitt. Það eina sem ég sá í New York Times í dag var smá frasi í samhengi við annað efni, orðrétt:
"the most hallowed Communist holiday".
Og hana nú sagði hænan. Greinilegt að braskararnir líta á verkalýðinn sem upp til hópa kommúnista. kommon man, kannski. Þá skoðaði ég í dag undir dálkinum "On this day" var ekki einu sinni minnst á verkalýðsdaginn, heldur aðra sögulega viðburði eins og að Mózart hafi fyrst flutt Figaró(!) árið sautjánhundruðogsúrkál.

24. Apríl, 2003
MonALIsa
Tvíræða brosið. Mon Ali sa. Sigur í Írak. Húrra, húrra! Hér er dulbúið  andlit þeirra sem eru sama og ekkert ræddir í fréttum í BNA.

Gerði á tölvu, Apríl, 2003.

"Why, of course, people don't want war... But, after all, it is the leaders of the country who determine this policy and it is always a simple matter to drag the people along, whether it is a democracy or a fascist dictatorship or a Parliament or a Communist dictatorship."
"Voice or no voice, the people can always be brought to the bidding of their leaders. That is easy. All you have to do is tell them that they are being attacked and denounce the pacifists for the lack of patriotism and exposing the country to danger. It works the same way in every country."
Sagði Hermann Goering, úr bók Gilberts, bls. 278-279.

24. Apríl, 2003
Til umhugsunar.
Hvernig stendur á að fjölmiðlar hér hrópa húrra húrra yfir að byrjað er að dæla olíu úr Írak en spítala vantar á sama tíma meðul, tæki, vatn, mat... hmmm. Er þeim alvara með að laga infrastrúktúr Íraks?

23. Apríl,2003
Nuremberg Diary, eftir G.M. Gilbert
Var að klára þessa frábæru bók, sem ég nældi mér í vegna hugsanlegra sögulegra réttarhalda í Írak. Skrifuð af (bloggara?) Gilbert Bandarískum sálfræðing sem hált dagbók á þeim tíma sem hann ráðlagði og ræddi við glæpamenn 3ja ríkisins er Nuremberg réttarhöldin stóðu yfir. Veitir innsýn inn í mannlegann veikleika skrímsla. Eða þannig já. Alltaf allt einhverjum öðrum að kenna.
Það merkilega er að hugarfar manna eins og Goering minnir mig óþægilega á Rumsfeld. Hrokafullur fyrir mann í opinberri stöðu, bendir á hvað gagnrýnendur á hann eru vitlausir, hann hefur alltaf rétt fyrir sér. Og hæðinn brandarakall, af þeirri gerð sem er vinsælt hjá mönnum með einhverja gerð af minnimáttarkennd.
Á óvart kom einnig hræðsla nasistanna við Stalín. Þeir litu á það sem tímaspursmál hvenær Stalín réðist á Þýskaland. Þessi hræðsla var svo tekin upp af vesturveldunum eftir að hermenn Stalín slátruðu nasistunum.

Mæli með þessari frekar auðlesnu löngu skruddu ef þú hefur áhuga á boring efni eins og sögu.

21. Apríl, 2003
Signý og Sindri í heimsókn. Stutt stopp en alltaf gaman að sjá þessar elskur. Þau drekka ekki kaffi.

18. Apríl, 2003
Man in the moon?

 

Fóstrið okkar Donnu sést hér sitjandi. Spriklar ótrúlega -kannski bara að dingla í naflastrengnum. Maður gerði þetta sjálfur á sínum tíma til að stríða elsku mömmu. Merkilegt hvað fóstrið hreyfist mikið. Ca. þumalputti á stærð, þ.e. um 5 cm, mínus 6 mánuðir, fæðingardagur 30. Október, Halloween!

Köllum hann/hana Pumpkin. Í bili. Bara að vona að allt gangi eins og í sögu og við kominn í urðunarbusinessinn í lok ársins. Stefnum á Grafarvogs-style bryggjuhverfi út í Hudson á með bleyjur einar að vopni!