|
|
|
Blogg Ólafs Þórðarsonar í New York
á dingaling.net/blogg.htm
212 482 0202 |
Copyright : |
|
Copyright Ólafur Þórðarson (Olafur
Thordarson)
msn: veffari |
|
|
|
2001-2003 :
2004 :
2005 :
KVARTANIR
: ENGLISH
:
HIN
HLIÐIN
-COPYRIGHTED MATERIAL-
|
Velkomin(n) á persónulegt blaður,
röfl og þvaður, í þessum heimi kjaftæðis og blaðurmennsku. Ef
þú nennir að lesa þetta, þá máttu fá orðu frámér. Öll
skrif hér eru mitt orginal efni, annað er sérstaklega tekið fram og
má ekki kópíera neitt nema láta mig vita. Sem er ábyggilega hið
minnsta mál, nema það sé náttúrulega gert án afskaplega jákvæðrar og
nákvæmrar tilvitnunar.
Pabbi minn er lögfræðingur.
Ef þú ert svona aktual vegfarandi/Íslendingur í ferð á Manhattan
máttu alveg hringja og fá kaffi hjá okkur. Við erum í
fjármálahverfinu rétt sunnan við World Trade Center fyrrum, í húsinu
hér til vinstri, númer fjörutíuogfjögur Trinity Place annari hæð.
Fyrir framan okkur er Trinity kirkjan, fyrir aftan okkur einhverjar
klámbúllur. Svona mitt á milli guðs og skrattans mætti segja mér.
Hmm jamm ó já.
Yes, this is copyrighted material. You
are not allowed to copy anything here without my permission.
|
 |
|
tölvupóstur: olafur (á) dingaling.net
|
10. Desember, 2005
Morðingjar í Amerískum flugvélum í Miami.
Fyrir uþ.þb. ári var ég að hjóla minn venjulega rúnt meðfram
Hudson ánni þegar ég kom fram á 2 Security guards, svartklædda menn
með vélbyssur. Einn þeirra sneri sér snögglega við og beindi
vélbyssunni (eða hvað sem þessi hólkur er) beint á mig, það var ekki
óvart, hann setti sig í viðbragðsstöðu. Alger fáviti. Ég kvartaði og
einhver hrokagikkur frá FBI hringdi í mig til baka og talaði í
hringi um hvernig þessir menn væru vel þjálfaðir og starfi sínu
vaxnir þrátt fyrir að beina vélbyssum að fólki hér í hverfinu.
Nú voru svona Security agentar að drepa mann á flugvelli í Miami nú
á Fimmtudaginn. Fréttamiðlar töluðu um þetta sem terroristaárás
þrátt fyrir að engin sprengja hafi fundist. Síðan þá hefur enginn
farþeganna staðfest staðhæfingu byssumannanna í flugvélinni að
maðurinn hafi einu sinn sagt "bomb." Það er greinilegt að hér er um
sama vandamál og í London þar sem öryggisverðir myrtu saklausann
mann. Þessir idjótar í Miami voru að myrða saklausann mann.
Þjóðernisremba, karlrembusvín, byssumenn, vald til að beita byssum í
farþegarými flugvéla er slæmt samsull. Farþegar voru látnir halda
uppi höndum í langann tíma eftir að öryggisverðirnir myrtu manninn.
Sumir farþeganna kvörtuðu yfir að byssum hafi verið beint að hausum
þeirra. Terrorisminn kemur frá stjórnvöldum og allir ganga upp í
ruglinu um að verið sé að vernda landann.
Gestapó here? Kannski.
|
10. Nóvember,
2005
66° Norður opnun
Fór í flott hlaup í dag, tók ágæta spretti á leið minni meðfram
Hudson ánni, með einhverjum léttum æfingum ofl. 40 sit-up ofl. Svo
var farið á opnun 66° Norður í Soho. Þar
hitti ég fjölda manns, þ.á.m. Arnald Indriðason fyrrverandi
skólafélaga úr MH. Dugnaðarforkur og hann var alveg jafn myndarlegur
og í Menntaskóla.
|
13. Október, 2005
APPLE tilkynnir IPOD!
Steve Jobs kynnir nýjann IPOD:
"It's a
stunner and yes, it does video" sagði goð auglýsendabrasksins.
|
4. Október, 2005
Meistaraverk
Hér er fyrsta myndin hennar Lilju. Auðvitað algert meistaraverk,
gert 23 mánaða að aldri.
|
2. Október, 2005
Björn Bjarnason með cheapshot.
Í dag birtist frétt á mbl.is með að Ólafur Ragnar hefði sagt:
„Þarf hinn kjörni fulltrúi ekki lengur á þingfundi að halda
til að koma viðhorfum sínum til kjósendanna? Getur rödd eins
þingmanns sem berst eftir netslóðum orðið áhrifaríkari en ályktanir
þingflokkanna?“
Svo er birt svar Björns Bjarnasonar, þar sem hann tekur þessa
vangaveltu nafna míns og slettir því til baka: "Björn segir
að svar sitt við þessum spurningum sé einfaldlega nei og það byggi
hann á tæplega 11 ára reynslu af því að halda úti vefsíðu. Netið eða
skrif á það koma að sjálfsögðu aldrei í stað þess að flytja mál í
þingsalnum eða standa að afgreiðslu mála í þingflokki."
Verð að segja að þessi "frétt" með svari Björns er bara cheap shot.
Að taka orðin svona úr samhengi er dæmigert fyrir að reyna að koma
höggi á andstæðing með útúrsnúningum. Titill fréttarinnar var: "Segir
tölvuna ekki öflugra áhrifatæki en ræðustól Alþingis."
Sem er ekki alveg rétt túlkun á orðum Ólafs. Þar fyrir utan held ég
að það séu takmarkaðar týpur sem lesi blogg Björns og ekki alveg
marktækt að nota blogg hans sem einhvern viðmiðunarstaðal.
|
October 1, 2005
Police Horseshit on Hudson River bike path..jpg)
Dog owners are subjected to heavy fines for not cleaning up
after their dogs. As they should.
But policemen on horses? Nah, they can crap all over the place such
as the rollerblader/bicycle path. I have seen a rollerblader fall
after hitting horse shit. Well, some people need to have their
shit-priveleges.
.jpg)
|
29. September, 2005
Security problem!
Today at noon I had
some time to kill with my lovely daughter so we went
among other places to J&R
camera store to see if they had a belt pouch for the camera. Pushing
the baby stroller, I went into the store. There were relatively few
people in there and I was told by this woman at the registry that
all the camera bags were downstairs. I saw no way down with a
stroller and only after I asked, she said that there were sorry,
no elevators. So I took my daughter out of the stroller and held
her, so the two of us could just walk downstairs.
And so this went:
I said: No problem. I'm leaving the stroller here so we can
walk downstairs.
Woman at registry: You can't leave the stroller there.
I said: Would you mind keeping an eye out for our stroller
while we shop please?
Woman at registry: You can't leave the stroller there,
SIR!! [as my baby and I proceed down the stairs to go find a
camera bag] If you leave the stroller there, I will call
Security. Security!!!
I looked at her and rolled my eyes and just walked downstairs. So we
looked around for a little while and didn't find the right bag and
went upstairs again. I put my daughter back into the stroller. Then
walked past the woman and looked at her and said: Bitch.
Then casually walked out. Well anyways, she is a
bitch, not helping out properly and behaving like a paranoid
security problem psycho.
Issue of the day: There are two kinds of people in this world. On
one hand there are people who create problems. Then there are people
who solve problems.
|
29. September, 2005
Bush boðar aukna óöld í Írak
Bush boðaði í gær aukna óöld í Írak. Og eins og hendi væri veifað af
himnum ofan voru miklar sprengjuárásir í landinu sem búið er að
frelsa. Vonandi sofa íslenskir ráðamenn vel, vitandi að þeir hafa
tekið þátt í þessu.
|
26. September, 2005
Grein í mogganum.
Smá klausa kom í mogganum í morgun um sýninguna í Nordlys:
- MBL/Myndlist/Ólafur
Þórðarson í Nordlys
Í GALLERI Nordlys á
Frederiksborggade 41 í Kaupmannahöfn hefur verið opnuð sýning á
verkum Ólafs Þórðarsonar." Etc etc.
Ásamt meðfylgjandi mynd... |
22. September, 2005
Bók útkomin :
Young Nordic Design
Þá er komin út bók um norræna hönnuði, gefin út í Kína og með nokkri
góðri umfjöllun um mitt mál, eitthvað 10 bls.
|
21. September, 2005
Tónlistarhúsið við höfnina.
Manni er með öllu óskiljandi hvað verið er að byggja
tónlistarhús við höfnina. Hvort sem þessi frístandandi skúptúr er
skreyttur af frægum listamanni skiptir akkúrat engu máli. Með
shopping-malla drasli í gigantískum pakka þá verður þetta slæm
viðbót við miðbæinn.
Ég tel T.A.M. að mun skynsamlegra hefði verið að byggja á einhverri
auðri lóð við Laugaveg eða Hverfisgötu, t.a.m. Stjörnbíóslóðinni,
sem hefði vel nægt til að rýma tónlistarhús. Þá hefði verið óþarfi
að klína saman við húsið einhverju shopping mall drasli enda barir,
kaffi og veitingahús allt umhverfis og við Laugaveginn. Hvers vegna
hafa fáa valkosti með menningarlegt umhverfi tónlistarhúss við
höfnina, þegar Stjörnubíóslóðin bauð upp á allt sem þurfti? Fyrir
utan að þá hefði verið sett vítamínsprauta á Laugaveginn, hefðu
nærliggjandi veitingastaðir notið góðs af og nýir sprottið upp. En
nei, í staðinn er byggður einhver skúlptúr við ytri höfnina,
algerlega slitinn frá menningarlegu samhengi miðbæjarins.
|
19. September, 2005
Lilja pissar í koppinn sinn
Jæja, Lilju tókst að pissa í koppinn sinn. Og reyndar að kúka
líka, þó sá brúni hafi bara verið 2 cm á lengd. Allavega er þetta
stór dagur.
|
19. September,
2005
Sýningar mínar í Köben.
Hér er hægt að sjá nokkrar myndir af sýningunum mínum í Köben:
Copenhagen
|
18. September, 2005
Flug-blogg
Sat við hliðina á manni frá Argentínu, sem hafði unnið fyrir
frakka, listmunasala. Skondið var að ég hafði átt í bréfaskriftum
við kauða fyrir um 10 árum síðan. Eitt er þó orðið frekar þreytandi
hjá
Icelandair
en það er þetta jarðarfaragaul sem spilað er tilskiptis við Sting
lag í aðkeyrslu að flughöfninni: How fragile we are, bla bla,
stynur Sting, voða fragile eitthvað, næstum brotlentir. Í byrjun
flugs er alltaf spilað eitthvað James Bond stíls-vídeó, greinilega
ætlað til sjálfstrausts meðal farþega meðvitaða um stórfengleg
flugslys og aðrar splundranir. En auðvitað lenti vélin heilu og
höldnu eins og hver önnur flugvél, enda bara ein af tugþúsundum
flugvéla sem eru í loftinu allann sólarhringinn. Og við lendingu
birtist Davíð Oddsson úr Saga class. Leit hann beint á mig með
hvössu augnaráði, held hálfgerðri fyrirlitningu. Kannski hefur hann
langað til að rasskella mig eða kannski honum hafi þótt ég ætti að
fara í klippingu. Það eru nú ekki allir með svona fína
hárgreiðslumeistara, sérfræðinga í permanenti eins og hann á hverjum
morgni, ekki heldur allir hæstvirtir ráðherrar með svona hlýðna
snoðklippta hunda snuðrandi í kringum sig.
|
4. September, 2005
Flóð í New Orleans, Lousiana.
Svo virðist sem yfirvöldum hafi, á fyrstu 5 dögunum eftir
óveðrið, mistekist að halda uppi glansmynd af hetjuskap eins og þeim
tókst hér í fjármálahverfinu fyrir um 4. árum. Áherslan hér þá var
lögð á að bjarga þessum dauðu, tugþúsundir íbúa hverfisins þ.m.t.
við Donna vorum heimilislaus í um 6 vikur vegna reyks og mengunar af
bálinu sem kraumaði í 2-3 mánuði hér tæpa 300m frá okkur. Lögregla
var dónaleg við íbúa hverfisins og fólki var snúið frá án þess að í
nein hús væri að venda. Engar ráðleggingar, bara lögguhroki og
yfirgangur. Rauði Krossinn var harkalega gagnrýndur en var samt eina
stofnunin sem hjálpaði okkur aðeins, ca mánuði seinna, kannski
gagnrýnt af því það er alþjóðleg stofnun og ó-Amerísk. Til dagsins í
dag eru listar af fórnarlömbum glæpsins í tvíburaturnunum á auðri
lóðinni, allir titlaðir sem "hetjur." Og borgarstjórinn laug að
íbúum hverfisins trekk í trekk og er líka titlaður sem hetja.
Fáránlegt hvað er í gangi.
Svo það kemur ekki á óvart að New Orleans er fórnarlamb staðnaðs
kerfis þar sem agressívir sölumenn verða forsetar og leiðtogar
sí-veruleikafirrts almennings sem fær fréttir soðnar í kjallaranum í
Hvíta Húsinu.
Forsíða New York Times vefsíðu segir: "Bush pledges more troops as
Evacuation grows." Í staðinn fyrir að segja eins og er að hann hefur
fokkað þessu máli eins og flestu sem hann kemur að. Svo þrátt fyrir
allann þennan horror í New Orleans er glansmyndinni haldið á loft og
einhverjum litlum köllum verður kennt um með taktískum trixum
pólitíkusa. Það er jú sama liðið
og laug til með WMD og hefur komist upp með hryllinginn í Írak.
Á endanum gleypir almenningur kannski við þessu í nafni fána,
krossferða og þjóðerniskenndar.
Ég skal veðja að svipuð björgunarvandamál hafa átt sér stað áður með
fellibylshörmungar, svæði sem bara höfðu ekki prófíll New Orleans,
einum af kúltúrperlum Ameríku.
|
10. Júlí, 2005
Til sölu: Auglýsingar
Eitt sem ég sé í búðum eru stuttermabolir með áprentaðri
auglýsingu frá einhverju fyrirtæki. Og þessir bolir eru seldir á
hærra verði en þeir sem hafa ekkert áprentað. Að fólk versli
auglýsingar er hámárk lágkúrunnar og svona bolir eiga að vera
ókeypis. How low can you go???
|
7. Júlí, 2005
Sprengingar í London, 30+ dauðir.
Jæja, þá kom að því. Dregur hugann aftur að 9-11 og þeirri panik
sem maður upplifði. Ég segi eins og er að þetta hefði getað verið
margfalt verra. Sprengjur í neðanjarðarlestum fullum af fólki drepa
mögulega þúsundir. Hef bloggað um þessa hættu áður fyrir NY, við
Donna notum lestarnar frekar lítið á annatímum, enda er gæslan ennþá
svo til engin í þessum lestum. Þó að borgarstjórinn ljúgi að mikið
sé gert. Ekki einu sinni hægt að tala í farsíma þar undir götunum.
Allavega, þetta hefði getað farið á verri veg í London, er satt að
segja hissa á að talan sé ekki tíföld.
Sama grúppa segir Ítalíu og Danmörku næst.
|
3. Júlí, 2005
Sendinefnd Kína kölluð heim úr Reykjavík
Skv. RÚV: Kínverjar móðgaðir
yfir að Íslendingar skuli hafa fengið varaforseta Taiwan í heimsókn.
Miðað við aðferðir Kínverja í Tíbet er spurning hvort þeirra tilkall
eigi rétt á sér. Svo eru þeir Taiwanir sem ég þekki aldeilis á móti
yfirráðasemi Kínverja og vilja sjálfstætt ríki en ekki innlimun í
útþennslustefnu Kína.
Nú er ég svo einfaldur að ég skil ekki hvernig viðskiptatengsl
einhverra fyrirtækja geta staðið ofar sjálfræði fólks. Eru menn að
verja stöðu Kína vegna viðskiptamanna sem eru að fjárfesta í Kína?
Eru menn að gefa grænt ljós á Kínverskt Taiwan vegna brasks? Ég held
nú að það sé stærra og víðameira undirstöðuatriði sem gildir hér.
Sjálfsákvörðunarréttur fólks og lýðræði. Hef lesið að 80-90% Taiwana
vilji sjálfstæði.
Kannski er eðlilegast að bara leyfa Kínverjskum sendiherrum að fara
til síns heima og breyta svo sendiráði þeirra í safn. Sem dokúmentar
helför Tíbetbúa undir Kínverskum innrásarher. Þeir hafa nú aldeilis
staðið sig vel í fjöldamorðunum, nauðgunum og upprætingu á Tíbetskum
kúltúr.
|
30. Júní, 2005
Sögðum upp sjónvarpinu hér í New York
Vorum að segja upp kapalsjónvarpinu. 100 rásir! All full of
shit. Fer niður rásirnar og tel hvar eru auglýsingar, það er ca 70%.
Og þetta kostar okkur $720- á ári. Hlægilegt. Ekki hægt að láta
bjóða sér þetta. Svo er monopoly á kapalsjónvarpi hér (bara
auðhringurinn AOL TIME WARNER) svo ekki er um val að ræða. Erum því
komin aftur með loftnet eins og 1970. Afturför? Nei, við bara verðum
að leigja meira af myndum hjá Netflix og svo náum við PBS stöðvunum
ok með loftnetinu.
Man eftir að hægri pungar hneyksluðust á að Clinton væri hættur að
horfa á sjónvarp /v/Monikku), að hann væri ekki í þessum heimi etc.
Auðvitað bara kjaftæði því sjónvarpið er svo lélegt hér. Í staðinn
fyrir að eyða $720- á ári í sjónvarpsAUGLÝSINGAR eyðum við ca $250 í
áskriftir að góðum tímaritum, NYReview of Books, New Yorker etc.
|
24. Júní, 2005
Símaskráin, afturför?
Þeir eru margir sem opna símaskrána (ef þeim leiðist svakalega) og
lesa hitt og þetta í henni. Eldgosavarnir, neyðarnúmer,
umferðarskilti, kort af ýmsum stöðum... Símaskráin er ekki bara
númeraskrá, heldur flettirit með ýmsum hagrænum upplýsingum. Kortin
sérstaklega gagnleg. Nú í dag fer maður á netið og leitar að
símanúmerum þar. En ekkert kort er að finna, engar svona
aukaupplýsingar eins og eru svo gagnlegar í gömlu góðu símaskránni.
Bara símanúmer og einhverjir stúpid dílapakkar. Svo versnar þetta
eftir sölu símans, þjónustan bundin við að selja kúnnanum eitthvað
drasl til að græða á. Allavega er net-símaskráin ekkert miðað við þá
gömlu og mun minna gagnleg nema betri í að finna sjálf símanúmerin.
Aðalatriðið eru jú númerin en augljóslega ekki eina atriðið eins og
vefsíðukallar síminn.is virðast halda.
|
20. Júní, 2005
When the mountains tremble, mynd eftir Rigoberta Menchú
Góð mynd frá sjónarhorni Quiché indíána í Guatemala og baráttu
þeirra gegn herforingjastjórninni sem framdi fullt af viðbjóðslegum
hermdarverkum gegn fátæklingum. Eitthvað sem Reagan kallinn studdi
rækilega.
|
10. Maí, 2005
Gulkistan, listahátíð á Laugarvatni
Sendi inn þetta verk á Gullkistuna á Laugarvatni. Lágmynd af
framhlið Alþingishússins, steypt í gúmmí, gull-gúmmí nánar tiltekið,
með spottum og ál-krossi fyrir ofan. Og í gluggum má sjá hvað fram
fer innan dyra í einkadílum strengjadúkkna bananalýðveldisins.
Myrkraspil hins gullna musteris.
|
31. Maí, 2005
Vinsamlega verið jákvæð.
Þetta er nú bara tilvitnun. Veit ekki hvað maður á að
halda um svona: Í dag; "In Washington, U.S. President George
W. Bush said that despite mounting casualties in Iraq, "I'm pleased
with the progress" being made. I am pleased that ... there is a
democratically elected government in Iraq, there are thousands of
Iraqi soldiers trained and better equipped to fight for their own
country," he told a news conference in the White House Rose Garden.
86 Bandarískir hermenn og bandamenn dauðir þennan mánuðinn og milli
700 og 800 Írakar drepnir. Veit ekki á hvaða plánetu sumir eru, ef
þetta á að kallast að vera ánægður með þróun mála. 3
flugvélar/þyrlur krassa á 4 dögum "ekki vitað" hvað olli, þó það sé
nokkuð augljóst...
|
29. Maí, 2005
Churchill, íhald og kommapakk
Churchill sagði eitthvað á þá leið að að ungir menn séu vinstri
menn og sósíalistar en verði svo hægri menn með árunum. Mín reynsla
er þveröfug við þetta. Það fólk sem ég þekki er á ýmsa vegu í þessu
máli. Sjálfur var ég sjálfstæðismaður og frekar íhaldssamur þegar ég
fyrst greiddi atkvæði. Eftir því sem ég les meira til um gang mála
færist ég svo meira til vinstri.
Þessi klysja Churchill sem svo margir hólma-steina klónar vilja
eigna sér er píp eitt, álíka og að segja að vinstri menn geti ekki
stjórnað fjárhag í landinu eða að hægri menn kunni ekki að gera
græna borg.
Svo held ég að Churchill, sem var útúrdrukkinn daginn út og inn,
röflaði ýmislegt sem meikar ekki sens við nánari skoðun. Mönnum
hættir til við að einblína á hann sem hetju þjóðarstoltsins og að
allt sem hann gerði og sagði væri eitthvað heilagt. Það er auðvitað
fjarri lagi að vera rétt.
Svo má spyrja hvað verður um stuttbuxnagengið þegar það þroskast.
Verður það þá að fasistum, eða hversu mikið lengra til hægri geta
þeir farið á annað borð?
Endurvinnsla
Það liggur ljóst fyrir að ef við lítum á fólksfjölgun, matvælaþörf
og hráefnavinnslu, framleiðsluþarfir og mengun ofl. þá eru takmörk
fyrir hversu lengi hlutirnir endast.
Ekki entust skógar landsins lengi. Geirfuglinum var stútað. Síldinni
var stútað. Hörpudiski. Hvalategundir hafa farið nær útrýmingu
sumar. Fiskimiðin eru eitt stórt spurningamerki eftir áratuga
nauðgun með stálflekum og dráttarskipum sem tæta botna og hreinsa
upp stóru svæðin til að fullnægja okkar pervísku
neytenda-fullnægingarþörfum.
Mikið af því sem við snertum á drepst og eyðilegst nema að fagmenn
fylgist vel með og fá að ráða hvernig staðið er að hlutunum. Saga
Aeops um eggin og gullhænuna er í fullu gildi.
Mikið af endurvinnslu er því á byrjunarstigi með meðfylgjandi
fæðingarhríðum. Menn tala um að endurvinnsla á pappír sé ekki
möguleg. En ef við tökum pappírsfjall neytendaskíts næstu 10 ára? Er
engin leið að endurnýja það fjall? Trúi því ekki.
|
28. Maí, 2005
Írak. Kontrastar eru áhugaverðir:
Laura Bush May 21, 2005:
"Now we are seeing a springtime of hope across the
Middle East. Brave men and women are writing a new chapter in the
story of self-government,"
Baghdad blogger, Wednesday, May 18, 2005:
"The last two weeks have been violent. The number
of explosions in Baghdad alone is frightening. There have also been
several assassinations- bodies being found here and there. It's
somewhat disturbing to know that corpses are turning up in the most
unexpected places. Many people will tell you it's not wise to eat
river fish anymore because they have been nourished on the human
remains being dumped into the river. That thought alone has given me
more than one sleepless night. It is almost as if Baghdad has turned
into a giant graveyard."Frelsið og einkavæðing.
Frelsi er eins og við vitum ofnotað orð þegar kemur að markaðsmálum.
Markaðurinn virkar vel þegar hann er afgirtur rétt. Ríkið virkar
prýðilega þegar aðstæður eru réttar. Skattar geta virkað prýðilega
m.a. þegar kerfið er nægilega opið og hægt er að ræða af viti hvað
er verið að eyða í.
Einkavæðing ríkisbattería virkar stundum, stundum ekki. Ameríska
ríkispóstþjónustan USPS er t.d. prýðileg rikisrekin, gerir manni
kleyft að senda bréf hvar sem er í BNA fyrir 37c. 20 Krónur.
Einkapóstfyrirtækin rukka léttilega þrjátíufalt þá upphæð.
Einkavæddu símfyrirtækin í USA eru öll ömurleg. Hef ekki enn skipt
við Amerískt símafyrirtæki sem er heiðarlegt eða sanngjarnt eða er
ekki bara hrein okurstarfsemi með gyllitilboðum. Ég vildi óska þess
að til væri ríkissímfyrirtæki í BNA þar sem maður vissi að hverju
maður gengi.
Skattamál og fyrirtækin.
Fyrirtækjaræði hefur haldið innreið sína í Ísland af fullum krafti.
Atkvæði hins almenna borgara mun smátt og smátt minnka í vægi, á
meðan fyrirtæki munu stjórna meira og meira á bak við tjöldin og
spila með borgarana til að greiða hinu og þessu atkvæði. Sú
staðreynd að þau hafa fengið auka-skattfríðindi er bara eitt
einkennið á þessu vandamáli sem fyrirtækjabraskarar eru.
Þó er ég hlynntur lægri skatti á fyritæki sem eru undir ákveðinni
stærð. Stðreyndin er sú að smærri fyrirtæki leggja langmest af
mörkum til þjóðfélagsins í heildina séð. Það er í smærri fyrirtækjum
og miðlungs stærðar fyrirtækjum sem við höfum mest á að græða.
En með lækkun skatta mun koma aukinn niðurskurður á almennu öryggi
borgara. Heilbriðgðismál og menntamál þau viðkvæmustu. Og svo segi
ég enn og aftur: Allt tal um skattalækkun er innantómt píp án
rökstuðnings með hvar eigi að skera niður. Fyrst kemur
niðurskurður og svo skattalækkunin. Allir eru að vilja éta með
rassgatinu í þessu máli eins og mörgu öðru.
|
27. Maí, 2005
Frjálsir Bankar boða á gott þjóðfélag, eh...e...e..
Ég fékk tilkynningu frá einum kreditkortabankanum í sl. viku að
ef ég væri (smáa letrið) seinn með greiðslu bara einhvers staðar
(þ.m.t. í ÖÐRUM BÖNKUM) að þá myndu þeir hækka vextina í 30%. Lengi
lifi frjálsi markaðurinn!!!
Bankar eru svindlstofnanir. Regla númer eitt.
Regla númer tvö: Símafyrirtæki eru svindlstofnanir. Þau sökka
langflest.
Hér í USA hefur þetta lengi verið einkavætt. Kanar þekkja þessi mál
og skrifa mikið um ágallana. Gangi Íslendingum vel!
|
26. Maí, 2005
GRÆNA BYLTINGIN -TAKA 2!
1974 var árið hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég var 11 ára,
sjálfstæðismaður og fannst þetta bara flott. Þeir birtu mikið
kort af Reykjavík þar sem græn svæði áttu að vera næsta
byltingin í mannkynssögunni. Við nánari skoðun kemur í ljós að þetta
var bara kosningabrella og mikið af þessum grænu byltingarsvæðum eru
vindrassgat, umferðareyjar og einskins manns land meðfram ömurlegum
hraðbrautum á borð við Miklubraut. Úrelt þá og úrelt í dag. Hverjum
dettur svona vitleysa í hug?
Nú jæja, þá hafa Sjallar aftur birt nýja mynd, af byggð í eyjunum
við sundin: Úrelt 1974 og úrelt í dag.

Svo sem svoldið flott teiknuð mynd. Og sexy úr þessum
fjarlægðarpunkti. En þeir virðast ekki hafa náð því ennþá greyin að
núverandi skipulag hreinlega virkar ekki. Úrelt hugmyndafræði
byltingarsinna (og þar að auki kommúnista!) frá því fyrr á sl. öld.
Innbyrðis þétting borgarinnar, bættar almenningssamgöngur, minnkun
bílismans, virðing fyrir náttúrufari Reykjavíkursvæðisins, gott
kerfi hjólastíga... Hvenær ætla menn að ná því að það er
mannskemmandi að sitja í bílnum endalaust og hafa ekki kost á
fararmáta öðrum en að keyra í einkabíl? Það virðist tilheyra
fortíðinni að geta labba út í búð. Eða að labba eitt eða neitt á
annað borð. Hollasta hreyfingin er mest fyrirbyggjandi gegn
sjúkdómum og lífsstíll súperspillts neyslupervisma er hreinlega ekki
góð framtíðarsýn.
Eyðilegging Viðeyjar er stórt spurningamerki. Ef tala á um byggð
þar, á að ræða afar takmarkað byggðarmynstur, hef í samkeppni um
Viðey lagt til byggð með bústöðum, fyrir listamenn eða þ.h. sem hægt
er að leigja út. Hvers virði er eyja sem er tengd í land með brú og
byggð með þessum skipulagsformúlum eins og sjást á nærmyndinni með
gráu byggingunum, þar sem bílastæðin eru ca 60% af lóðinni fyrir
miðju:
Bílastæði
ráða mestu um gerð byggðasamsetningar,
flöskuhálsa-vindrassgats-safngötur eru í hring um þennan óskapnað.
Svona skrípi, bæ the vei, mun rúla í Vatnsmýrinni ef flugvöllurinn
fer fljótlega. Sjá fyrri skrif mín á þessu bloggi.
En eyðilegging Akureyjar og Engeyjar, eru menn að missa vitið?
Hversu stórt úthverfaskipulag er hægt að gera í Engey? Fyrir 2000
manns? "Tjah, með því að fylla nægilega upp í hana er hægt að koma
fyrir 3000 manns, dööö." Auðvitað er ekki rökrétt að gera ráð fyrir
mjög þéttri byggð í Engey og eyjan væri eyðilögð með úthverfagutli.
Ef menn vantar byggingarland fyrir þétta byggð nærri kvosinni, þá má
líta á
hugmynd mína sem sýnd var í Hönnunarsafninu 2002, um að stækka
miðbæinn mjög þétt, á uppfyllingu til norðurs og út með
Skúlagötunni. Það styrkir og hressir miðbæinn, framlengir hann og
býður upp á þétt skipulag með því að henda þessum monster-
tónlistarhússáætlunum í endurskipulagningu.
|
25. Maí, 2005
Amerískir fjölmiðlar.
Ég horfði (of) mikið á sjónvarp fyrstu 10 árin. Svo smátt og
smátt datt það upp fyrir og nú í dag les ég bara góð Amerísk
tímarit. Það er ekki hægt að láta bjóða sér þetta auglýsingasorp sem
sjónvarpið er að mestu. Les ekki Time, Newsweek eða svoleiðis drasl,
heldur New York Review of Books, New Yorker, Washington Post
(vikuritið) og Atlantic. Með lestri á þessum ritum er hægt að halda
sönsum í Bandaríkjunum í fleiri áratugi. Fyrst Kanar hafa ekki
ríkisútvarp eða ríkissjónvarp. Sá skortur er auðvitað aðal lösturinn
á fjölmiðlamálum hér í BNA. Eitthvað sem and-RÚV istar ættu að hugsa
vel og rækilega um er að með ríkisfjölmiðli er hægt að gera kröfur
til fréttamiðils á öðrum forsendum en bara einhverju markaðsdrifnu
kjaftæði. Veruleikafirring almennings af hálfu fjölmiðlaeigenda
(auðhringa) er klár staðreynd, sem dregur dilk þjóðfélagsvandamála á
eftir sér.
Þar fyrir utan er fastagjaldið ekki það mikið að menn eyði ekki öðru
eins í eitthvað algert kjaftæði hvort eð er.
|
24. Maí, 2005
Lýðræðið í verki á vefnum?
Þessi Stefán er maður sem á skilið hrós fyrir að halda út besta
spjallborði á Íslensku:
www.malefnin.com Þar gætir margra grasa og er gerólíkt þessum
persónulegu bloggsíðum sem menn halda úti.
|
24. Maí, 2005
Hagatorg-Melatorg. Verst hannaða skipulagssvæði borgarinnar?
Ég er ekki frá því að þessi spotti sé með því allra versta sem
skipulagið hefur kvittað uppá. Hagatorgið sem er kringlótt en græn
umferðareyja, engar
búðir við það "torgið," enda ekki torg í neinum borgar-skilningi.
Þarna er bíó, hótel, skemmtistaður osfrv. en allt slitið burt frá
torginu og bakkað lengst inn á lóðirnar og vel aðgengilegt bílum
einum saman. Svo milli hótelsins og bókasafnsins er heljarinnar
bílastæði á borð við verstu shopping mollin. Á þetta að heita
borgarskipulag? Þetta er agalega lélegt úthverfagutl og það
mjög nærri miðbæ Reykjavíkur.
Svo ef við skoðum sjálft bókasafnið, þá kemur í ljós að það er illa
úthugsað í tilliti við sitt umhverfi. Innra kannski snilld(?) En gert eins og virki gegn
borginni, þá stendur það á miðri lóðinni og tengist ekkert götum og
gangstéttum og húsum sem liggja við götur allt umhverfis. Ef þetta
er ekki kjarni hins króníska vandamáls með borgina, þá veit ég ekki
hvað er. Bygging sem ekki stendur við og virðir gangstétt götunnar
sem hún stendur við er ekki borgarbygging. Svona einfalt er það.
Illa farið með gott land nærri lykilpunktum Reykjavíkur. Götum
umhverfis breytt í sveitavegi eða einhæfar hraðbrautir.
Einu sinni var sparkvöllur þarna.
Melavöllur. Og þótti fólki nú ekki mikið til hans koma þó
vinsæll hafi hann verið. Hann var betri arkitektúr en bókasafnið að
því leyti að hann sneri allavega að hringtorginu sjálfu,
gangstéttinni þar, virti svona grunnreglur borgarskipulags.
Mín vegna er kjörið mál, utan að senda jarðýtur á bókasafnið, að
byggja þétt umhverfis það og alveg að Hringbraut og Suðurgötunni.
Með því að setja bílastæðin í eitt bílastæðahús má byggja heilmikið
á svæðinu milli Hótelsins og Bókasafnsins og kannski fá smá
borgarbrag í þetta einskismannsland.
"Döö, nehhei, menn vilja frekar byggja meira svona í Vatnsmýrinni!"
|
23. Maí, 2005
Grein í "silfri Egils" um Kína og Walmart.
Hér er það sem ég hef áður kynnt mér:
Þúsundir verksmiðja vesturlanda hafa verið fluttar í heilu lagi til
Kína og annara landa þar sem vinnnuafl er ódýrt.
-Vesturlandabúar fá ódýrari vöru.
-Vesturlandabúar missa atvinnu í framleiðslugreinum og á endanum
rétt meika að kaupa ódýru vörurnar.
-Örsmár hópur vesturlandabúa græðir á því að flytja atvinnuvegi
vesturlanda til Kína og annarra landa, flestir þegnar vesturlanda
græða ekki nema í byrjun þegar vöruverð lækkar hratt. Svo tekur
raunveruleikinn við með minnkuðum atvinnutækifærum og lækkandi
rauntekjum á hinn venjulega mann (ekki braskara)
-Verksmiðjur og framleiðsla eru undirstaða allra þjóða. Það mun
fyrst reyna á efnahaginn þegar lönd eru alveg búin að missa sína
framleiðslugetu sína til annara landa.
Walmart og Kína og þessu ferli hafa verið gerð góð skil í fjölmörgum
greinum í almennilegum blöðum hér vestra sem og í stöku góðu
sjónvarpsþætti. Man í augnablikinu eftir
þessum þætti sem framleiddur var á miðju síðasta ári. Mikið af
bókum snerta á þessu efni, sem reyndar dúkkaði upp í síðustu
forsetakosningabaráttu hér vestra.
Það er að sjálfsögðu enginn Íslendingur að finna upp þetta efni,
ekki frekar en bíl, DVD diska eða tölvur. Eða þá bara nokkurn
skapaðann hlut ef út í það er farið.
|
21. Maí, 2005
Þingvellir 1974, hátíð og mótmæli.
Árið var 1974 og ég var næstum unglingur með foreldrum á
Þingvöllum á hinni miklu hátið 1100 ára áfanga. Sólin skein og allt
lék í lyndi. Fólk dúllaði um staðinn í sæluvímu þjóðernisstolts, með
blöðrur í annari og Coca Cola í hinni og Íslenska fánann upp úr
hausnum.
Skyndilega birtist hvítur borði efst á hömrum Almannagjáar, hvítt
lak með rauðu letri þar sem á stóð: "[b]Ísland úr NATÓ, herinn
burt[/b]". Sumir hlógu og kváðu þetta flott uppátæki, meðan
Sjálfstæðismenn og aðrir á svipuðum nótum settu upp stút og
hneyksluðust á þessu athæfi. "Helvítis kommúnistar, hippar og
dópistar, aldrei friður fyrir þeim, og það á þessum helga degi í
Íslandssögunni."
Svo birtust hettumáfar og réðust að fólkinu með lakið, það
handtekið. Ég skildi nú ekki hvað það hafði gert af sér fyrir utan
að þurrka smá þvott. Er bannað að hengja lak á klettaveggina?
Síðar heyrði ég að einn mótmælendanna var nemi í USA og fékk ekki
aftursnúið fyrir að hengja upp þvottinn.
|
8. Maí, 2005
Skipulagssamkeppni um miðbæ á Akureyri, úrslit. Vision Akureyri,
Akureyri í öndvegi.
Í gær voru veitt verðlaun í samkeppni um skipulag Akureyrar.
Tillagan er um margt mjög góð, hefur til síns
ágætis, s.s. skýrt kerfi grænna svæða, en leyfir ekki útvíkkun
miðbæjar nema að mjög takmörkuðu leyti. Miðað við þá fólksfjölgun
sem verið hefur á Akureyri myndi ég halda að ekki væri nægilegt
byggingarpláss veitt, og að sú húsagerð sem stungið er upp á væri
líklegast stórkallaleg í smágerðu mynstri Akureyrarbæjar. Síkið sem
grafið væri að Hafnarstræti er sniðug hugmynd en myndi ryðja í burt
1/3 af húsunum sem standa núna við Hafnarstræti, og skera miðbæinn í
tvennt. Enginn skal segja manni að nýrri hús væru betri en þau
gömlu, nema frá þröngum sjónarhóli viðskipta. Nýtt húsnæði væri að
öllum líkindum dýrara en það gamla, sem er fælandi fyrir sumar
þjónustur. Svo dreg ég í efa að
rétt sé að rífa þessa húsaklasa, bara til að tengja í gilið. En eins
og ég setti fram er þegar til nægt byggingarpláss ef rétt er skoðað.
Þ.a.l. er lítil ástæða að vera að rífa byggingar meðan nægt pláss er
fyrir hendi. Svo er líka hitt að hraðbrautin sem Glerárgata er, er
leyft að vera áfram í 4. akreina hraðbrautarfyrirkomulagi, þ.e.
götur miðbæjarins væru allar göngugötur og allri umferð þ.a.l.
þjappað á Glerárgötu. Dreifingu allrar umferðar um miðbæ, þ.m.t.
bílaumferðar er skilyrði fyrir lifandi miðbæ. Athugaðu París ef þú
ert í vafa, prinsippin eru jú ummargt lík ef ú heldur að Akureyri sé
ekki París.
Svo er aðalvandamálið þessi nýja menningarmiðstöð, sem er eins og út
úr kú hvað borgargerð varðar. Það hús er álíka og landsbókasafnið
við Suðurgötu/Hringbraut, er ekki hluti af sínu húsaumhverfi. Eins
og kú úti á túni. Held ég hafi verið sá eini sem stakk upp á
endurhönnun Menningarhússins áður en það slysið fer í byggingu.
Allavega er áhugavert að bera saman vinningstillöguna (1) og tillögu
mína (2), hafa ber í huga að ég tók bara fyrir svæðið við höfnina
og að núverandi miðbæ, enda er það lykillinn að þessu öllu saman:
| (1)
|
(2) |
|
Hefur
ás til vesturs frá höfn, síki sem sker miðbæinn í tvennt.
Einhverjir smábátar kæmust undir brúna. |
Hefur ás til
vesturs frá höfn, en með umferðarmiðstöð, þar sem strætó, rútur
og leigubílar eiga spot, þ.e. sauma bæinn saman. |
| Rífur 1/3
bygginga við Hafnarstræti. |
Viðheldur
Hafnarstræti komplett, sem er í dag eina alvöru borgargata Akureyrar.
Ekki skemma það sem virkar. |
| Gerir ráð
fyrir göngugötum í öllum miðbænum |
Gerir ráð
fyrir hægari bílaumferð sem hluta af götumynstri. Án
bílaumferðar er miðbærinn auðvitað óvirkur. |
 |
 |
| Glerárgata gerð að "götu" í hluta
tillögunnar, þ.e. sunnan tilvonandi Menningarhúss. |
Tillaga mín
stingur upp á losa við hraðbrautarfyrirkomulagið alveg og skipta
stefnu Glerárbrautar í tvennt, hleypa í staðinn tveimur
einstefnugötum í miðbæinn, enda er leyfð bílaumferð í miðbæ eins
og vítamínsprauta, hraðbraut eins og eitur. |
| Gerir eins og
allar hinar tillögurnar ráð fyrir að Menningarhúsið verði reist
í núverandi mynd, þó það sé hannað eins og kú á túni og hefur
ekkert með sitt húsaumhverfi að gera (umhverfið ekki til fyrr en
þessi samkeppni kom til) |
Sér
Menningarhúsið tilvonandi sem skipulagsmistök, vill láta
endurhanna það sem hluta af húsa skipulagi.
Hvers vegna teikna hús fyrst og svo skipulag? Hér skýrist vel
þessi gamli góði frasi: "Þegar arkitektinn veit ekki hvað hann á
að gera, þá teiknar hann hring." |
| Fyllt er upp í gömlu höfnina að
hluta. |
Gerir ráð
fyrir að núverandi innri höfn verði smábátahöfn, við hana
ííbúðabyggð, verslana og kaffihús. |
| Skemmtiferðaskip-aðkoma hefur sama
legupláss og í (2). Aðkoma væri í
Menningarhúsið óreista. |
Skemmtiferðaskips-aðkoma væri í
nýtt Menningartorg, umlukið alls konar byggingum, þ.m.t.
endurhönnuðu Menningarhúsi, tónlistarhúsi og vetrargarði. |
| Garðakerfi mikið með göngustígum,
græn svæði eru stór. |
Hefur göngustíga í gegnum
skipulagið og meðfram höfninni, sem tengir N-S. Græn svæði eru
innan byggðarinnari. |
| Húsagerð tekur ekki mið af
veðurfari |
Húsagarðar glerjaðir og gerðir að
vetrargörðum, sem dreift er um byggðina og nýtast sem tengiliðir
innan og milli hverfa (ljósblátt) |
Dæmin um París og Prag eru ekki til þess
gerð að halda Akureyri stórborg, heldur að í þessum borgum sést
hvernig skipulag er best gert. Það er engin ástæða að halda að
Akureyri geti ekki verið með götulífi, enda sést það nú á
Hafnarstræti. Ekki neinum nýjum götum.
That's it folks.
Allt fyrirkomulag og skipulag sjálfrar keppninnar frábært og til
fyrirmyndar, hægt er að skoða tillögurnar allar á vefsíðu vision
Akureyri
http://www.vision-akureyri.is/
|
19. Apríl, 2005
Nýr páfi RAPSINGER
Get svarið það. Hélt fyrst að þeir segðu rap-singer. Hvaða
rappari er þetta hugsaði ég með mér um daginn. Svo kom í ljós að
þetta var RaT-singer. Þá hugaði ég með mér, hvaða rottu söngvari er
þetta?
|
19. Apríl, 2005
Háskóli Reykjavíkur undir Öskjuhlíð.
Á vefsíðu RÚV er greint frá því að Háskóli Reykjavíkur hyggist
byggja upp sinn háskóla á svæðinu undir Öskjuhlíðarskógi, milli
Nauthólsvíkur og Loftleiðahótels. Þeir lýsa yfir að það sé
"steinsnar" frá miðbæ Reykjavíkur, sem er náttúrulega algert rugl.
Þetta er bara enn eitt úthverfasullið því ekkert er í kring til að
styðja við háskólann, s.s. pizzustaður, kaffihús, bíó, bókabúð og
allt hitt sem kallast "steinsnar" frá miðborg. Hvað þá húsnæði á
almennum markaði, sem nemendur ættu að geta sótt í nálægt skólanum.
Þarna hefur verið vegur í áratugi, sá sem liggur að Nauthólsvík. Það
er ill-skiljanlegt hvers vegna byggt er þvert á veginn, utan
einhvers konar grafísk teiknara æfing. Svo er þetta "hverfi"
umkringt hafsjó bílastæða, sem væntanlega verða stærri en ráð er
gert fyrir. Við skulum kalla þetta tilvonandi húsaklasa Háskóla
Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir stúdentagörðum yfir nokkuð stórt
landrými og munu þeir gera svæðið frekar einhæft, hvers vegna
stúdentagörðum er ekki bælandað inn í venjulega byggð er galli á
gjöf Njarðar, en eiginlega týpískt fyrir þetta tindátaskipulag sem
virðist ráða í Reykjavík.
Mér líst þó afar vel á að byggja nær flugvellinum og þétta byggðina
að honum. Það er þó ekki sama hvernig það er gert.
Svo eru Bretamynjar þarna sem virðast munu hverfa alveg. Hvar
tilfinningin fyrir sögu er, veit ég ekki. Það er ekkert nýtt að
framtakssamir niðurrifsseggir vilja skemma fornmynjar.
Þetta sýnir og sannar það sem ég hef verið að halda fram:
Vatnsmýrarskipulagið verður úthverfa-gutl á endanum, ekkert verður
farið eftir heildarmynd. Bara farið eftir bílaumferð og öðru
ó-borgar- og ó-menningarlegum forsendum. Enda er skipulagið í
Reykjavík ekki upp á marga fiska, endalaus umhverfis- og
skipulagsslys á skipulagsslys ofan eins og bókasafnið við Suðurgötu
sannar. Virkið gegn borginni umhverfis er vitaskuld klæmaxinn á
anti-borgar mentalitetinu.
Aftur að Vatnsmýrinni, sumir sjá fyrir sér háhýsin, einhvers konar
tilgerðarlegt mini-Manhattan. Vil leggja áherslu á að háhysi í
samfélagsstærð Íslands virka alls ekki nema til að móta neitt nema
póstkortamynd. Asnalegir turnar svamlandi í hafsjó bílastæða. Þetta
er formúlan og sem borg mun það ekki virka. Og svo kæmu túristarnir
aldrei til að skoða slíkt, enda álíka áhugavert og kommúnistablokkir
austurtjaldslandanna sem eyðilögðu þær borgir fyrir 50 árum síðan.
Talandi um tímaskekkjur. Og ekki bæta þær umhverfið á jörðu niðri,
þar sem kaffihús og þétt athafna og íbúðahverfi á að rísa í stað
einhæfra blokka.
|
2.
Apríl, 2005
Reiðhjól í fiskinet
Eitt sem lítið virðist rætt er hvernig löggan í New York er að
handtaka fólk svona út í bláinn. Friðsamir mótmælendur og fólk sem
gerir (eða er) eitthvað öðruvísi er einfaldlega handtekið fyrir að,
tjah, gera ekki neitt glæpsamlegt. Það er ekki eins og verið sé að
gefa út stöðumælasektir, hraðaksturssektir eða að sekta fyrir að
keyra yfir á rauðu ljósi, heldur er fólk handtekið og sett í
steininn fyrir að gera ekkert af sér, þ.e. fyrir að hjóla á
reiðhjólum. Ha?
Já ekki er öll vitleysan eins og merkilegt hvað karlremban í
einkennisbúningnum er iðin við að fela sig á bak við reglugerðir,
fána, byssu og ofbeldi til að fá útrás fyrir sínar sækó
ofbeldishvatir. Á bak við þessa ólýðræðislegu starfshætti eru
borgarstjórar New York, lögreglan og karlrembu-bumbu-liðið sem sér
terrorista og anarkista í hverju horni.
Reiðhjólamenn hafa í áraraðir tekið sig saman og hjólað einu sinni í
mánuði um borgina í hópum, bara til að benda á eitthvað, eins og
t.d. hvað reiðhjól eru betri ferðamáti í borg en bílar, allavega í
mörgum tilvikum. Karlrembunni líst illa á þetta að sjálfsögðu.
Stríðir gegn jeppamennsku, byssumentaliteti og með vel skipulögðum
áróðri eru sófalöggurnar liðið sem ræður, búið að stimpla reiðhjólamennina
sem anarkista. Já það vantar ekki. Ekki lítið sem vantar í hausinn á
anti-reiðhjólamönnum, þ.e.
Aðferðir löggu við að handtaka reiðhjólamennina er áhrifamikil, þeir
stökkva inn í hópa fólks með appelsínugul plastnet og "veiða"
heilann hóp af fólki, væntanlega reiðhjólafólki. Inn í
möskvastærðina slæðast svo "venjulegir borgarar" sem voru að fara út
í búð eða eitthvað. Eða reiðhjólamenn sem voru bara að fara í
hjólreiðatúr. Svo er trollið tekið og fólkinu hent upp í
lögreglubíla, öll reiðhjól tekin, tekin skýrsla og fólkinu haldið í
einhvern tíma. Þekktast er á síðasta ári þegar reiðhjólamenn
slysuðust til að fara í sinn mánaðarlega hjólreiðartúr á sama tíma
og Repúklikkanakúrekaráðstefnan var hér. Þá voru
reiðhjólaglæponarnir sko teknir fyrir og þeim hent í bílageymslu
pier 27 í þar til gerð vír búr og haldið í fleiri daga án dóms og
laga, án þess að þeir hefðu gert neitt nema bara farið í
hjólreiðatúr saman.
Hér
er kona sem kvartar undan því að hafa verið handtekin svona.
Vil benda á að margir í New York lítur niður á hjólreiðamenn,
sendlar fara geist um, en auðvitað gæti það létt mjög á umferð ef
hjólreiðamönnum væri gert betur kleift að komast ferða sinna, bætt
heilsu og minnkað mengun... Svona atriði eru kannski of "hommaleg"
fyrir karlbumburnar í einkennisbúningunum.
|
20. Mars, 2005
Hundaæði
Vorum á labbi í gær og fórum inn í hundabúð á Upper East Side. Þar
sá ég þessa stóru hillu með tískusjámpóflöskum fyrir tíkur og
hundskratta. Ekki vantar úrvalið og erfitt að velja hvað passar
betur við hliðina á mannasjampóbrúsunum. Svona tískulega séð, hvað
passar við bleika borðann í eyrum hundsins.
|
20. Mars, 2005
Central Park ferð
Fórum á afmælisdegi mínum saman í Central Park. Þar tók ég m.a.
þessa mynd af einni brúnni í garðinum.
|
17. Mars, 2005
Slökkvilið eða brunalið? Turninn
felldur.
Jæja, þá hefur Reykvíkingum tekist að farga enn einu
merkilegu kennileiti borgarinnar. Turninn sem hefur verið
æfingarturn slökkviliðsmanna frá 1967 hefur sett mikinn svip á
svæðið þar sem einu sinni stóð eitt af braggahverfum borgarinnar.
Tákn nýs tíma er horfið. Eins og þversneiðingarskúlptúr sneiddur úr
einhverri blokkinni þá er hann bara horfinn. Eins og hendi væri
veifað.
Einn brunaliðsmaðurinn segir turninn hafa verið "tímasprengju" og
slökkviliðið ekki séð sér fært "að hafa svona hættu" hjá sér. Þeir
eru náttúrulega ekki menningarvitar frekar en sprengjusérfræðingar,
þó þessi turn hafi sjálfur verið menningar-viti og í raun merkilegt
tákn síns tíma, þegar trú á vísindin og á getu mannsins og framfarir
voru í hávegum hafðar. Látið er í veðri vaka að turninn hafi verið
að falli kominn en miðað við aðferðirnar er augljóst að mikil vinna
var við að brjóta steypuna. Varla var turninn neitt í líkingu við
þann í Pisa og með smá fjárveitingu hefði mátt bjarga honum. Það er
alltaf auðveldara að skemma en búa til.
Mér er minnistæður strompurinn stóri við Sundahöfn sem vel hefði
mátt standa líka. Annað sterkt kennileiti í borginni og mikið
mannvirki, sem núverandi kynslóð virðist ekki hafa haft skilning á
heldur að hefði sögulegt gildi.
Ef Rundetarn hefði verið byggður í Reykjavík hefði kannski einhver
framtaksmaðurinn rifið hann fyrir langa löngu og sagt eitthvað á þá
leið að byggingin væri eldgömul, og ónothæf því gólfin væru svo
skökk að þau væru stórhættuleg. "Barnakerrur gætu runnið niður á
fullri ferð!" Meðan ég man, í safni einu þar sem
listamaðurinn var með ruslapokaskúlptúr, tók einn
hreingerningartæknirinn sig til og henti skúlptúrnum án þess að gera
sér grein fyrir hvað hann var að gera.
Einu sinni heyrði ég líka deilt um hvort slökkvilið væri slökkvilið
eða brunalið. Lógíkkin væri víst sú að slökkvilið slekkur elda en
brunalið kveikir elda. Nú hefur slökkviliðið gerst sekt um að vera
brunalið.
Farið varlega.
|
15. Mars, 2005
Bush liðið býr til fréttirnar
Svo eru haldnar kosningar. Hvurs lags er þetta, hvað er að ske í
þessu landi? Að ríkisstjórnin búi til fréttirnar og svo er þeim
dreift um öll Bandaríkin eins og fréttamenn hafi fundið eitthvað út?
Washington Post er með frétt um þetta;
artic...-2005Mar14.html þar sem m.a. segir:
"The Bush administration, rejecting an opinion from the Government
Accountability Office, said last week that it is legal for federal
agencies to feed TV stations prepackaged news stories that do not
disclose the government's role in producing them."
Spillingin er með eindæmum, Hvíta húsið notast við aðferðafræði
harðstjóranna; mata almúgann á "vel völdum fréttum."
Ætli þetta sé öðruvísi á Íslandi, bara betur falið?
|
7. Mars, 2005
Breytingar á rekstri RÚV. Til bóta??
Nú er verið að breyta RÚV og koma því á spena hjá ríkinu og
afnema afnotagjöldin. Í stað þeirra verður lagður á
nefskattur. Sem þýðir að RÚV er að fara á fjárlög ríkissjóðs og
ríkisstjórnin hefur þá enn meira að segja um efnisval og að klippa á
fjárveitingar ef þeim líkar ekki gagnrýni á sig.
Það sem verra er, er að útvarpsráð verður lagt niður og þess í stað
ráðherraskipuð rekstrarstjórn! Þetta þýðir, my friend, að RÚV verður
bein málpípa stjórnvalda. Slæmt mál. Mjög slæmt mál fyrir lýðræðið í
landinu.
Þetta þýðir sem sagt að undir stjórn Davíðs Oddssonar væri skipuð
útvarpsstjórn sem er hliðholl honum. Merkilegt hvað lýðræði á
Íslandi er að hraka og í staðinn að komast á einræðiskennt
fyrirtækja-anarkífyrirkomulag. það er varla uppskrift í góða
framtíð. Verið er að einkavæða RÚV út af einhverri ídeólógíu og
þetta er miðjuskref í þeirri stefnu.
Miðað við aðra kostnaðarliði í þjóðfélaginu eru upphæðir RÚV
kostnaðar sáralítlar. En er bráðnauðsynlegur öryggisnagli á yfirgang
öfgafyrirtækjamennsku eða annara einkahagsmuna. Ef menn eru að mæla
með einkavinavæðingu (sölu) RÚV, þá mæli ég með því að þeir taki sér
6 vikna frí og keyri þvert yfir Bandaríkin. Stilli útvarpið á
leiðinni til að ná stöðvum og komi síðan til baka og segi okkur af
því hvers lags frábært efni markaðurinn er fær um að gefa
hlustendum. Við þurfum ekki einu sinni að byrja á því sorpi em
kallast sjónvarp hér. Einu stöðvarnar hér sem hægt er að hlusta á
eru örfáar sjálfstæðar stöðvar, margar með einhverja opinbera
styrki, en lifa núorðið mest á peningagjöfum hlustenda,
auglýsingafríar. Þær eru fáar, en t.d.
www.wnyc.org og www.wbai.org
og nokkrar aðrar. Allar í útrýmingarhættu eftir að hafa verið teknar
af spenanum. Hagræðing gerð af fávitum leiðir alltaf til verra lífs.
Svo spyr ég bara: Hver var það sem setti sinfóníuhljómsveitina á
spena RÚV?
|
1. Mars, 2005
Víetnam Írak
Menn segja að ekki séu sömu mótmæli hér í usa eins og á tímum
Víetnam stríðsins. Þetta skýrist af ýmsu, m.a.:
-Sjónvarpsstöðvar eru hnitmiðaðri í að spreða áróðri stjórnarinnar,
m.a. að hræða fólk frá því að mótmæla.
-Mótmælendur mótmæla en tölur þeirra eru minnkaðar niður mjög mikið,
meira að segja hjá New York Times.
-Hermenn eru það sem skiptir máli fyrir Bandaríkjamenn og
staðreyndin er að engir þingmannasynir eru í þessu stríði, ólíkt í
Víetnam stríðinu.
-Fólk hugsar almennt mun meira bara um sjálft sig. |
24. Febrúar, 2005
GATES
Fór með móður minni og Hauki Morthens í Central Park að skoða Gates,
þar sem ég smellti af þessari mynd.
|
20. Febrúar, 2005
Hreindýraveiðar á Austurlandi
Sem dýravini finnst mér leiðinlegt að vita af því að menn eru að drepa þessi grey. Hef aldrei skilið svona
veiðiþörf nema menn að drepa sér til matar, en í dag er þetta kallað
sport. Að drepa saklaus dýr. En þau fjölga sér ört og geta valdið
skaða. Svo mér var að detta í hug að það mætti vel notast við aðra
aðferð sem örugglega hefur verið reynd á öðrum dýrategundum. Það er
að veita veiðileyfi fyrir henni, til að skjóta getnaðarvarnarpillu í rassinn á
þessum dýrum.
Sem þýðir að kenna veiðimönnum að skjóta
dýrin með svefnlyfi og fara svo að þeim og koma fyrir merkingu og
getnaðarvörn á eyrað eða eitthvað í þeim dúr. Veiðimenn geta borgað
fyrir skammtinn og það sem til þarf sem hluta af sportinu. Þá
allavega væru veiðimennirnir siðaðir, ekki bara "dýr líka." Enda
koma þeir hvort eð er við á McDonalds á leiðinni til baka.
Austfirðingar geta haldið áfram að selja skotleyfi á hreindýrin,
"markaðurinn" (grrr) stækkar, og jafnvel umhverfisverndarmenn geta
farið í skotveiðitúra. Krómfelgujeppanöttin með píkustuðurunum
keyptum í einhverri Amiríkuferð geta haldið áfram sínu sporti án
þess að þurfa að burðast með heim með eitthvað hræ sem þeir þurfa
pottþétt ekkert á að halda. Enda líklegast í einhverjum
leikfimisalnum að reyna að halda kílóunum í skefjum.
|
14. Febrúar, 2005
Makintosh tölvur
Þegar ég fæ pósta frá vinum og ísl letrið er skramblað þá veit
ég að þeir vinna á mac. Svona eins og SUMAR good lúkkíng sexý
ljóskur, sem ekki geta fallbeygt eða skilgreint Kafka. Sagði upp
mac-kærustunni ca 1998. Fyrir eina í hermannastígvélum.
|
13. Febrúar, 2005
Rif á 22 húsum við Laugaveg
Það er ekert að því að rífa hús, en mikið af þessum húsum eru
meðal elstu húsa á landinu og hafa afar sérstakann stíl. Þar að auki
hafa þau séð og heyrt meira en þeir hugmyndasnauðu menn sem stinga
upp á því einun að rífa "kofana." Mig minnir að Berhöftstorfan og
Grjótaþorpið hefðu átt að fara sömu leið. Vilja menn ekki bara láta
rífa þau í leiðinni?
Enn eru menn með dollaramerki í augunum. Svo er náttúrulega það
ruglaða við umræðuna, að það þarf að taka hvert hús fyrir sig og
sýna hvað kemur í staðinn. BEFORE og AFTER myndir eru
óaðskiljanlegur hluti þess að rífa hús frá 1900. En þar fyrir utan
eru íslenskir með ágætt hugmyndaflug og ættu að geta komið upp með
betri líkön fyrir hvernig hægt sé að innlima nýbyggingar innan um,
ofan á og jafnvel undir þessar gömlu byggingar.
Einhver kom þó upp með bestu hugmynd sem ég hef heyrt lengi: Hættið
að fara í Smáralind og drífið ykkur niður í b | | |